Loðnuleit lokið

Þrátt fyrir ítarlega leit náðist ekki að mæla þau 400 þúsund tonn af loðnu sem ...

Þrátt fyrir ítarlega leit náðist ekki að mæla þau 400 þúsund tonn af loðnu sem er miðað við sem grundvöll til útgáfu aflamarks. mbl.is/Brynjar Gauti

Umfangsmikilli loðnuleit hafrannsóknaskipa og fiskiskipa er nú lokið án þess að loðnukvóti væri gefinn út. Ekki náðist að mæla þau 400 þúsund tonn sem er miðað við sem grundvöll til útgáfu aflamarks. Þetta er í fyrsta sinn frá veiðitímabilinu 1982/1983 sem ekki hefur verið gefinn út loðnukvóti.

Björn Jónsson segir á vef LÍÚ að þetta séu mikil vonbrigði því fram hafi farið ein umfangsmesta skipulagða loðnuleit sem lagt hefur verið í á seinni árum.

„Það jákvæða er þó að þrátt fyrir að ekki hafi tekist að mæla nema 385 þúsund tonn virðist sem loðnan hafi hrygnt víða. Við höfum fréttir af því að loðnan hafi hrygnt við Vestmannaeyjar, Reykjanes, í Faxaflóa og í Kolluál. Það er vonandi ávísun á góða veiði eftir þrjú ár,“ segir Björn Jónsson hjá LÍÚ sem stjórnaði leitinni af hálfu útvegsmanna með  Hafrannsóknastofnuninni.

Leitað frá því 17. nóvember

Loðnuleit í vetur hófst með leiðangri rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar þann 17. nóvember og stóð  til 12. desember. Í þeim leiðangri tókst að mæla 270 þúsund tonn af hrygningarloðnu fyrir norðvestanverðu landinu. Strax eftir áramót var haldið til leitar á ný og bættust þá loðnuskipin Faxi, Börkur og Lundey við í leitina. Öll skipin eru með dýptarmæla sem eru sambærilegir við mæla hafrannsóknaskipanna og fjarskiptabúnað sem gerir þeim kleift að senda það sem mælist beint til Hafrannsóknastofnunarinnar til úrvinnslu. Árangur þessarar  leitar var nánast samhljóða fyrri niðurstöðu, eða um 268 þúsund tonn.

Loðnuleit Árna Friðrikssonar hélt áfram og þann 6. febrúar var tilkynnt að tekist hefði að mæla 370 þúsund tonn út af Austfjörðum auk 15 þúsund tonna á grunnslóð, samtals 385 þúsund tonn. Þremur dögum síðar gaf sjávarútvegsráðherra út 15.000 tonna leitarkvóta en þá var loðnan komin vestur undir Vík.

Eftir það tóku fjölmörg fiskiskip þátt í loðnuleitinni ásamt rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni. Til að byrja með var lögð áhersla á að leita djúpt út af NA-landi, Austurlandi, SA af landinu og síðan djúpt og grunnt að Vestmannaeyjum. Ekkert fannst á djúpslóð en leitarskipin fundu  loðnutorfur á grunnslóð sem fiskifræðingarnir töldu  að væru inn í þeim 385 þúsund tonnum sem áður var búið að mæla. Farið var í þrjá leiðangra á Vestfjarðamið og þann síðasta fór Álsey VE og leitaði til 12. mars í Kolluál og út af Vestfjörðum. Ekkert kom út úr því nema hrygnd loðna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hellur, garðhellur til sölu MEÐ 50% AFSLÆTTI
Hellurnar eru frá mest steypustöð og eru með granítyfirborði sem gerir þær mun s...
HÚS TIL LEIGU Í VENTURA, ORLANDO, USA
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
Plexiform Dugguvogi 11 104 simi 5553344
Póstkassar reyklitaðir, hvítir, svartir og trékassar. Bæklingavasar á borð og á ...
Íbúð til leigu í London
Falleg íbúð til leigu í hjarta Stoke Newington í Austur London. Rúmgott svefnher...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...