Breikkun Suðurlandsvegar kostar 15,9 milljarða
Samgönguráðherra og vegamálastjóri hafa samþykkt tilhögun áætlunar um tvöföldun Suðurlandsvegar. Leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss yrði 2+2 vegur að undanteknum kafla í Svínahrauni og á Hellisheiði sem yrði 2+1 vegur, en þá er um eina aukaakrein að ræða. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna. Fyrsti hluti verkefnisins verður boðinn út síðar á árinu.
Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri hafa kynnt fulltrúum nokkurra sveitarstjórna á Suðurlandi og Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi tillögur og áætlanir um hvernig hagað verður tvöföldun Suðurlandsvegar. Meginhluti leiðarinnar verður 2+2 vegur en kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum þar sem vegbreidd er 15,5 metrar, að því er segir í tilkynningu.
„Þar sem Suðurlandsvegur er með 2+2 sniði verður þversnið hans breitt, með 11 metra miðjusvæði, sem er sams konar tilhögun og á Reykjanesbraut. Þar sem aðstæður eru þröngar, til dæmis á kafla við Rauðavatn, verður vegurinn með svokölluðu þröngu vegsniði, þ.e. með aðskildum akstursstefnum með vegriði og 2+2 kafli um Kamba verður einnig með þeirri tilhögun.
2+1 kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður með vegriði en breiðari en núverandi 2+1 kafli í Svínahrauni. Einnig stendur til að breikka þann 2+1 kafla um einn og hálfan metra, úr 14 metrum í 15,5," samkvæmt tilkynningu.
Einn milljarður í verkefnið í ár
Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna, eins og áður sagði. Til ráðstöfunar á þessu ári verður kringum einn milljarður og verður fyrst boðinn út tvöföldun kaflans milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar og síðan kafli næst Vesturlandsvegi.
Meðalumferð á dag er misjöfn um hina ýmsu kafla Suðurlandsvegar og ræður hún meðal annars ákvörðun um útfærslu vegarins og hvort vegamót eru mislæg, á hringtorgi eða í plani. Umferð næst höfuðborginni er tæplega 13 þúsund bílar en er komin niður í um 8 þúsund bíla við Lögbergsbrekku. Á kaflanum milli Lögbergsbrekku og Kambabrúnar er meðal dagsumferðin um 6.500 bílar og um 7.300 milli Hveragerðis og Selfoss, samkvæmt upplýsingum frá samgönguráðuneytinu.
Bloggað um fréttina
-
Eyþór H. Ólafsson Glæsilegt framtak! -
Geir Ágústsson SJS: Of mikil eyðsla endar illa -
Njörður Helgason Ágætt mál. En lýsing óþörf. -
Birgir Þór Bragason Þessi leið á eftir að kosta nokkur mannslíf -
Haraldur Haraldsson Breikkun kostar 15,9 milljarða,///hvað hafa slysin kostað???? -
Héðinn Björnsson Hefði nú ekki verið nær að láta næstu stjórn um ... -
S i g u r ð u r Sigurðarson Tvöfaldur Suðurlandsvegur eða tvöfalt löggjafarþing? -
Haraldur Pálsson Spreð -
Jón Snæbjörnsson Breikkun Suðurlandsvegar kostar 15,9 milljarða -
Jónas Egilsson Vonbrigði með ákvörðun samgönguráðherra -
Eyþór Arnalds Mikill áfangasigur
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 1. janúar 2010, Innlent Fylgst með ákvörðun forsetans
- Laugardagur, 26. desember 2009, Innlent Erill hjá Ísólfi
- Þriðjudagur, 2. mars 2010, Innlent Flugumferðarstjórar boða verkfall
- Miðvikudagur, 24. mars 2010, Innlent Þjóðarsátt Framsóknar
- Laugardagur, 13. september 2008, Innlent Rannsóknarboranir næsta sumar?
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































