Mótmæltu meðferð á hælisleitendum

Mótmælt hjá dómsmálaráðherra.
Mótmælt hjá dómsmálaráðherra. mbl.is/Jakob Fannar

Hópur fólks kom saman á Lækjartorgi í Reykjavík í dag til að mótmæla meðferð íslenskra stjórnvalda á hælisleitendum á Íslandi. Var tilefnið það, að í síðustu viku átti að senda fimm hælisleitendur aftur til Grikklands. Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, ákvað hins vegar að því yrði frestað að senda fólkið úr landi á meðan mál þeirra yrði kannað nánar.

Fram kemur í tilkynningu frá þeim, sem stóðu fyrir mótmælunum, að eftir fundinn hafi verið haldið heim  til dómsmálaráðherra, sem ræddi við mótmælendur. Var ákveðið að  halda fund um málið í fyrramálið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert