Formannskosning klukkan 15:00

Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson sjást hér fagna eftir …
Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson sjást hér fagna eftir að þeir höfðu flutt ræður á Landsfundi í gær.

Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins verður kosinn í dag og verða úrslit kynnt klukkan þrjú. Valið stendur á milli Bjarna Benediktssonar, þingmanns úr suðvesturkjördæmi, og Kristjáns Þórs Júlíussonar, þingmanns úr norðausturkjördæmi.

Afgreiðsla ályktana hefst klukkan 10:00 í dag og verður henni lokið, samkvæmt dagskrá, klukkan 15:00 þegar tilkynnt verður um nýjan formann Sjálfstæðisflokksins og varaformann flokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, núverandi varaformaður flokksins, býður sig fram til áframhaldandi setu sem varaformaður.

Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins mun svo ávarpa Landsfund klukkan 16:00 í lok hans, samkvæmt dagskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert