Heilu rimlahliði stolið

Lögreglan á Selfossi fékk í síðustu viku tilkynningu  um að rimlahlið á Laufskálabyggðavegi við Hrunaveg væri horfið. Hliðið hafði verið tekið upp í haust leið og lagt í vegkantinn. 

Lögreglan segir, að nú í vetrarlok hafi menn veitt því athygli að hliðið sé horfið en verðmæti þess er talin vera á sjöttahundrað þúsund króna.  Þeir sem veitt geta upplýsingar um hliðið eru beðnir að hringja í síma lögreglu 480 1010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Valbjörn Júlíus Þorláksson: Mynd?
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert