Hafði ekki hugmynd um þetta
„Ég hafði ekki hugmynd um þetta og hef ekki enn haft tækifæri til þess að hitta framkvæmdastjórann, sem væntanlega ber ábyrgð á þessu,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að FL Group hefði styrkt Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins tveimur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. Spurð hvort hún myndi sem þingflokksformaður óska eftir fundi með framkvæmdastjóra flokksins svaraði Arnbjörg því neitandi, en tók fram að hún reiknaði með að framkvæmdastjórinn myndi skýra mál sitt.
Í samtali við Morgunblaðið tók Arnbjörg fram að þingmenn hefðu almennt ekki upplýsingar um fjárreiður flokksins. „Við þingmenn vitum ekki hvernig flokkstarfið er rekið fjárhagslega,“ segir Arnbjörg. Spurð hvort það geti ekki verið óheppilegt fyrir trúverðugleika þingmanna komi í ljós að flokkurinn hafi tekið við sérlega háum fjárframlögum svarar Arnbjörg: „Ef þetta er raunin þá hefði ég haldið að þetta væri ekki mjög heppilegt.“
Spurð hvort til greina komi að endurgreiða styrkinn segist Arnbjörg ekki hafa velt því fyrir sér. „Við beittum okkur fyrir því að það yrðu settar skýrar reglur um fjármál flokkanna og það er okkar vilji að þetta sé skýrt og að það séu hámarksupphæðir sem hver og einn geti greitt inn í flokkanna.“
En er í því ljósi ekki óheppilegt að aðeins nokkrum dögum fyrir gildistöku nýju laganna séu greidd fjárframlög sem augljóslega myndu ekki standast nýju lögin? „Sennilega, en ég verð hreinlega að fá betri skýringar á þessu áður en ég kommentera á þetta. Ég verð að fá upplýsingar um hvernig þetta er til komið eða hvort þetta er yfir höfuð raunveruleikinn.“
Í tölvupósti sem Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, hefur sent Morgunblaðinu kemur fram að á fundi miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins 3. október 2006 hafi verið greint frá því að hann óskaði eftir að láta af störfum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. „Á það var fallist. Á sama fundi var ráðinn nýr framkvæmdastjóri. Eftir það hafði ég ekki milligöngu um fjáröflun Sjálfstæðisflokksins,“ skrifar Kjartan.
Ekki hefur náðst í Andra Óttarsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Bloggað um fréttina
-
G. Valdimar Valdemarsson Að skreyta liðugt -
Egill Jón Kristjánsson Það þarf að aflúsa Sjálfstæðisflokkinn. -
Ólafur Ragnarsson Hugmynd. -
-
-
Eiríkur Guðmundsson Traust -
Axel Jóhann Hallgrímsson Tilliðkunarfé? -
Erla Margrét Gunnarsdóttir Hentug tímasetning...... -
Alma Jenny Guðmundsdóttir Hún er með ótrúlega langt nef! -
Haraldur Bjarnason Frúin í Hamborg og Valhallarleikurinn -
Stefán Friðrik Stefánsson Hver sótti styrkinn til FL og í hvaða tilgangi? -
Hjörtur J. Guðmundsson Samfylkingin neitar að upplýsa um styrkjendur flokksins árið 2006
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. nóvember 2008, Innlent Hissa á ummælunum
- Laugardagur, 14. mars 2009, Innlent Björgunarsveitir að störfum í vonskuveðri
- Mánudagur, 29. september 2008, Innlent Þingflokkur Sjálfstæðisflokks styður aðgerðirnar fullkomlega
- Sunnudagur, 15. mars 2009, Innlent Í takt við það sem ég lagði upp með
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Setti fram ásakanir um mútuþægni í ræðustól þingsins
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































