Afnám byggðakvóta vonbrigði

.
. mbl.is/Þorkell

Landssamband smábátaeigenda fagnar áformum sjávarútvegsráðherra um frelsi til handfæraveiða en að sama skapi lýsir félagið vonbrigðum með að ætlunin sé að leggja byggðakvóta af.

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í gær hugmyndir sínar að nýju veiðikerfi, strandveiðum. Steingrímur J. hyggst leggja fyrir Alþingi frumvarp strax að loknum kosningum þar sem úthlutun á byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári verður frestað og veiðiheimildir sem til hans eru ætlaðar nýttar í fyrirhuguðu strandveiðikerfi.

Þessum breytingum er ætlað að skapa svigrúm fyrir breytta stefnu til styrkingar og örvunar atvinnustarfsemi í sjávarbyggðum. Í áformuðu strandveiðikerfi verður bátum minni en 15 brt. heimilt að stunda frjálsar handfæraveiðar á tímabilinu frá 1. maí til 31. ágúst. Í veiðikerfinu verður aflamagn takmarkað af þeim heildarafla sem ráðstafað verður hverju sinni. Einnig verður fjöldi handfærarúlla á hvern bát takmarkaður, eingöngu verður heimilt að stunda veiðar á virkum dögum og hver dagróður má að hámarki vara í 12 klukkustundir.

Landssamband smábátaeigenda minnir í þessu sambandi á ályktanir síðasta aðalfundar sambandsins en þar er meðal annars lagt til að handfæraveiðar verði gefnar frjálsar og að stjórnvöld standi vörð um byggðakvóta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert