Ekki líku saman að jafna
Umræða um lægra raforkuverð til garðyrkjubænda snýst fyrst og fremst um niðurgreiðslur úr ríkissjóði,“ segir í yfirlýsingu frá Samorku, samtökum orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Þá segir að engar viðskiptalegar forsendur séu fyrir samanburði á orkuverði til garðyrkjubænda og stóriðju.
Í yfirlýsingu Samorku segir að undanfarna daga hafi heyrst krafa um að garðyrkjubændur fái keypta raforku á sama verði og stóriðjan. Garðyrkjubændur séu góðir viðskiptavinir orkufyrirtækja. Engu að síður sé þessi samanburður þannig að sæmilega stór garðyrkjubóndi kaupi ekki einn þúsundasta af því orkumagni sem meðalstórt álver kaupir.
Stóriðjan kaupi raforkuna í 24 klukkustundir á sólarhring og 365 daga á ári, alls um 8.760 klukkustundir á ári, skuldbundið til margra ára og jafnvel til áratuga. Garðyrkjubændur undirgangist engar slíkar skuldbindingar. Þeir noti gjarnan raforku til lýsingar í um 5.500 klukkustundir á ári.
Í yfirlýsingu Samorku segir að raforku þurfi að nota jafnóðum og hún er framleidd. Þess vegna séu mikil verðmæti í þessum stóru sölusamningum við stóriðjufyrirtækin. Dreifingin sé gjarnan um þriðjungur af raforkuverði til fyrirtækja og heimila. Stóriðjan taki við orkunni beint af flutningskerfinu og greiði því sjálf dreifingarkostnaðinn.
„Garðyrkjubændur hafa aftur á móti notið niðurgreiðslu úr ríkissjóði á dreifingunni, en nýleg ákvörðun um lækkun þeirrar niðurgreiðslu hefur verið gagnrýnd af þeirra hálfu. Umræðan um lægra raforkuverð til garðyrkjubænda er fyrst og fremst umræða um frekari og/eða áframhaldandi niðurgreiðslur á raforku til þeirra, úr ríkissjóði, og þannig hefur hún enda verið ágætlega sett fram af hálfu talsmanna garðyrkjubænda. Engar viðskiptalegar forsendur eru fyrir þessum algenga samanburði við stóriðjuna, sem heyrist svo víða annars staðar,“ segir í yfirlýsingu Samorku.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 9. apríl 2009, Innlent Segir John Perkins vera á villigötum
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Mótmæltu háu raforkuverði
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Segja gróðurhúsabændur sitja við sama borð og aðra
- Laugardagur, 18. apríl 2009, Innlent Garðyrkjubændur skrifuðu ekki undir
- Þriðjudagur, 3. febrúar 2009, Innlent Aðför ríkisins að íslenskri garðyrkju
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































