Þóra Kristín kjörin formaður Blaðamannafélags Íslands

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fyrir miðri mynd, á aðalfundi BÍ í …
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fyrir miðri mynd, á aðalfundi BÍ í kvöld. mbl.is/GSH

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, blaðamaður á Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, var kjörin formaður Blaðamannafélags Íslands sem fer fram í kvöld og stendur enn. Alls greiddu 100 manns atkvæði, Þóra fékk 65% þeirra en Kristinn Hrafnsson 34% og einn seðill var auður. Þóra Kristín hefur verið varaformaður BÍ undanfarin þrjú ár.

Fráfarandi formaður BÍ, Arna Schram, gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Aðrir stjórnarmenn voru endurkjörnir; Elva Björk Sverrisdóttir, Sigurður Már Jónson og Svavar Halldórsson. Þá kemur Kristinn Hrafnsson nýr inn í stjórnina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert