Avant býður aðlögun vegna bílalána
Avant fjármögnunarfyrirtækið hefur ákveðið að bjóða skilvísum viðskiptavinum sínum greiðsluaðlögun vegna bílalána í erlendri mynt. Lántakendur geta fryst hluta afborgunar í 8 mánuði og greiða áfram vexti. Þeir geta síðan valið að greiða að auki 33%, 50% eða 66% afborgun af láninu og lengist lánstíminn um tvo til fimm mánuði, allt eftir því hvaða afborgunarhlutfall lántakandi velur.
Avant hf., sem áður hét Sjóvá fjármögnun hf., var stofnað af tryggingafélaginu Sjóvá. Avant er dótturfélag Askar Capital.
Í tilkynningu segir að þeir sem hafa nýtt sér frystingu hingað til og þar með aðeins greitt vextina, geti eins og aðrir nýtt sér þessa greiðsluaðlögun þegar 4 mánaða tímabili frystingar afborgana þeirra lýkur. Þannig byrji viðskiptavinir Avant, sem fryst hafa afborganir, nú aftur að greiða niður lán sín auk vaxtanna.
Viðskiptavinir sem velja að frysta (áfram) hluta afborgana í 8 mánuði geta valið að greiða:
- Vexti + 33% af afborgunarhluta og lánið lengist um 5 mánuði
- Vexti + 50% af afborgunarhluta og lánið lengist um 4 mánuði
- Vexti + 66% af afborgunarhluta og lánið lengist um 2 mánuði
Hægt er að sækja rafrænt um þessi úrræði á vef Avant, á sama hátt og frystingu afborgana hingað til. Þar er einnig reiknivél sem gerir viðskiptavinum kleift að sjá áætlun greiðslufjárhæðar til viðmiðunar m.v. leiðirnar þrjár auk 100% greiðslu. Er þá miðað við forsendur eins og þær voru á síðasta greiðsluseðli.
Sömu skilyrði gilda varðandi hlutfallsgreiðslurnar og frystingar afborgana hingað til. Vísað er til fyrirvara sem settir voru við upphaflega lántöku og gilda sem fyrr um hverja skuldbindingu, t.d. varðandi gengisbreytingar, vexti og afborganir af samningum í erlendri mynt. Innbyrðis sveiflur erlendra mynta annars vegar og hins vegar almennar gengisbreytingar íslensku krónunnar hafa daglega áhrif á greiðslubyrði lánsins í íslenskum krónum auk þess sem vextir eru breytilegir sem einnig hefur áhrif á greiðslufjárhæð.
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. janúar 2009, Innlent Hægt að frysta bílalán áfram
- Sunnudagur, 17. maí 2009, Innlent Lántakar með frystingu inn í sumarið
- Laugardagur, 31. október 2009, Innlent Samningar um greiðslujöfnun og skuldaaðlögun undirritaðir
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Landsbankinn býður óverðtryggð íbúðalán
- Miðvikudagur, 10. desember 2008, Innlent Greiða inn á höfuðstól
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































