Gengu í skrokk á stúlkunni
Fimmtán ára stúlka varð fyrir árás kynsystra sinna í Heiðmörk síðdegis í dag. Stúlkan kom í fylgd foreldra sinna til lögreglunnar um kl. 18 í kvöld og tilkynnti um líkamsárásina. Hún er með áverka í andliti en er ekki brotin. Málið er í rannsókn.
Að sögn lögreglunnar hafði stúlkan farið upp í bíl með 6-7 aðeins eldri stúlkum sem hún kannaðist við. Þær tóku hana upp í Hlíðunum og fóru með hana upp í Heiðmörk. Þegar þangað var komið gengu tvær þeirra í skrokk á stúlkunni. Síðan óku þær stúlkunni til Hafnarfjarðar og skildu hana eftir verslunarmiðstöðina Fjörð.
Foreldrarnir fóru síðan með stúlkuna á slysadeild þar sem læknir fór yfir áverka hennar. Í kjölfar þess fóru foreldrar stúlkunnar með hana til lögreglunnar.
Tilefni árásarinnar liggur ekki ljóst fyrir að sögn lögreglu en unnið er að rannsókn málsins.
Að sögn Ríkisútvarpsins hafði stúlkan sem ráðist var á átt i deilum við eina af þeim sem á hana réðust. Stúlkan sem hún hafði deilt við hafði beðið hana að hitta sig svo þær gætu sæst. Tvær stúlkur sóttu síðan fórnarlambið á bíl. Þær óku síðan að Suðurveri þar sem fimm aðrar stúlkur bættust í hópinn. Þaðan var ekið í Heiðmörk og þar sem ráðist var á stúlkuna og hún barin í andlitið. Þær fóru aftur í bílinn og héldu barsmíðunum áfram. Stúlkurnar hótuðu fórnarlambinu lífláti og heimtuðu 150 þúsund króna greiðslu á morgun. Stúlkan var svo skilin eftir illa útleikna við Fjörðinn í Hafnarfirði.
Systir fórnarlambsins sagði við RÚV að ekki hefði mátt muna miklu að varanlegur skaði hefði hlotist af árásinni.
Bloggað um fréttina
-
Sigurveig Eysteinsdóttir Viðbjóður........ -
Marta Gunnarsdóttir Sjö forhertar ofbeldis-stelpur -
Hilmar Gunnlaugsson Taka þarf harðar á eineltismálum -
Arnlaugur Helgason Heimskingjar -
Jóhann Guðni Ragnarsson Girl Power í verki? -
Jenný Anna Baldursdóttir Við hvern er að sakast? -
Hólmdís Hjartardóttir Kreppukostir. -
Jakob Þór Haraldsson Viðbjóðsleg hegðun! -
Þóra Mjöll Jensdóttir Hvað er í gangi -
Kaj Skúli Hansen HVER ER ÁBIRÐ FORELDRA -
Ragnheiður J. Sverrisdóttir Ofbeldisfull ungmenni - Hvað er að ? -
Ingunn Guðnadóttir Þær vissu.......
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Formleg kæra lögð fram
- Miðvikudagur, 29. apríl 2009, Innlent Fjölskyldan er í sjokki
- Mánudagur, 14. desember 2009, Innlent Refsingu fyrir árás í Heiðmörk frestað
- Þriðjudagur, 29. apríl 2008, Innlent Stúlka kærð fyrir líkamsárás
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Haldið nauðugri og seld í vændi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































