Viss um að lausn fyndist á sjávarútvegsmálum

Joe Borg.
Joe Borg.

Joe Borg, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði á blaðamannafundi í Brussel í síðustu viku, að ef Ísland sækti um aðild að sambandinu sé hann þess fullviss, að lausn finnist á sjávarútvegsmálum sem muni tryggja að fiskveiðum á Íslandi verði stjórnað með sama hætti og gert hafi verið til þessa.

Þetta kom fram á blaðamannafundi, þar sem Borg kynnti skýrslu, svonefnda grænbók, um sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Þar kom m.a. fram að níu af hverjum 10 fiskistofnum í lögsögu bandalagsins væru ofveiddir. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er að skoða hvort taka eigi upp frjálst framsal á veiðikvótum að íslenskri fyrirmynd og vísaði Borg til þess á blaðamannafundinum.

Borg sagði á blaðamannafundinum, að flytja yrði ákvörðun um stjórn fískveiða á mismunandi svæðum í lögsögu bandalagsins nær svæðunum og íbúum þar. Erlendur blaðamaður spurði Borg hvort hann teldi að sjávarútvegsmál yrðu minni fyrirstaða en áður var talið í hugsanlegum viðræðum Íslands og ESB í ljósi þess, að borið væri lof á fiskveiðistjórnun Íslands.

Borg svaraði, að það væri rétt að ESB væri að taka upp ýmsar ráðstafanir sem norræn lönd á borð við Ísland og Noreg hefðu tekið upp, m.a. til að vinna gegn brottkasti.

„Ef Ísland ákveður að sækja um aðild, þarf að semja um (sjávarútvegsmál) sem hafa til þessa verið viðkvæm. Ég get ekki sagt fyrir um hver niðurstaða slíkra viðræðna yrði en ég er viss um að ef Ísland ákveður að sækja um aðild... mun landið finna í framkvæmdastjórninni samningsaðila sem er reiðubúinn til að ræða með mjög jákvæðum hætti hvort hægt sé að finna lausn sem tryggir að framtíð íslenskra sjómanna verði svipuð og þeir hafa haft það til þessa, en það yrði að vera innan marka sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar."

Borg  sagði einnig, að Ísland myndi án efa geta lagt sitt til málanna við endurskoðun fiskveiðistefnunnar, sem nú standi fyrir höndum. 

Blaðamannafundur Borgs

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert