Ástæðulaust að hamstra flensulyf

Flensulyfið Relenza.
Flensulyfið Relenza. Reuters

Landlæknisembættið segir, að ástæðulaust sé fyrir einstaklinga og fyrirtæki að birgja sig upp af veirulyfjum enda sé gert ráð fyrir að allir, sem á slíku þurfi að halda, fái lyf úr neyðarbirgðum veirulyfja ef til faraldurs kemur.

Sóttvarnalæknir segir nauðsynlegt, að veirulyfjum verði ávísað af læknum sem  leiðbeina jafnframt um notkun þeirra. Ef veirulyf verði notuð á rangan hátt aukist líkur á því að inflúensuveiran verði ónæm fyrir lyfjunum og þau gagnist því ekki þegar mest á ríður. Þess vegna sé mikilvægt allir fari eftir settum leiðbeiningum um notkun lyfjanna.

Stefnt er að því að kalla fljótlega saman almannavarna- og öryggismálaráð til að fjalla um viðbúnað vegna hugsanlegs inflúensufaraldurs. Hlutverk ráðsins er að marka stefnu stjórnvalda í almanna-, varna- og öryggismálum. Forsætisráðherra er formaður ráðsins en dómsmálaráðherra hefur með umsýslu þess að gera. 

Í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra kemur fram, að staðfest tilfelli inflúensunnar voru alls 1652 í morgun í 22 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 380 á síðastliðnum sólarhring. Staðfestum tilfellum fjölgar mest sem fyrr í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada og dauðsföll af völdum veikinnar eru nú talin vera 30, þar af 29 í Mexíkó.

Spánn sker sig nokkuð úr á lista yfir útbreiðslu inflúensunnar í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins. Þar eru flest staðfest tilfelli og staðfestum tilfellum fjölgar líka mest á Spáni.

Þegar á heildina er litið er faraldurinn vægur, að undanskildu Mexíkó.
Enginn hefur verið greindur með inflúensu A (H1N1) hér á landi og enginn hefur verið lagður inn á Landspítalann með alvarleg inflúensulík einkenni. Þá eru engin merki um hópsýkingar í Evrópulöndum. Viðbúnaðaráætlanir eru óbreyttar hér landi þar sem að faraldurinn er vægur.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert