Einn með litaða olíu á bílnum

Olía, sem er undanþegin olíugjaldi, er lituð með grænum lit.
Olía, sem er undanþegin olíugjaldi, er lituð með grænum lit.

Lögreglumenn frá Selfossi ásamt eftirlitsmönnum frá Vegagerð ríkisins höfðu í dag afskipti af rúmlega 100 ökumönnum dísilbibíla og tóku sýni úr eldsneytisgeymi bílanna til að kanna hvort lituð olía væri í tönkunum. Einn reyndist vera með litaða olíu og á von á sekt.

Eftirlitið fór fram á Selfossi og nágrenni.  Að sögn lögreglu reyndist einn ökumaður vera með litaða olíu í bílnum og var   kærður. Samkvæmt lögum um olíugjald og kílómetragjald varðar það sektum frá 200 þúsund til 1,25 milljóna að nota litaða olíu  á skráningarskylt ökutæki.  Sektarhæðin fer eftir heildarþyngd ökutækis. 

Í gær á milli klukkan sjö og níu stöðvuðu lögreglumenn um 500 ökumenn á Suðurlandsvegi við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni.  Þetta var gert til að kanna ástand ökumanna og ökutækja.  Einn ökumanna reyndist með útrunnið ökuskírteini og nokkrir voru ekki með ökuskírteini meðferðis.  Að öðru leyti var ástand ökumanna og ökutækja í góðu lagi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert