Enn fjúka hjólhýsi undir Ingólfsfjalli

Mynd sunnlendingur.is

Lögreglan á Selfossi varar ökumenn enn við að aka með hjólhýsi, eða aðra aftanívagna eftir veginum undir Ingólfsfjalli. Tvö hjólhýsi fuku út af veginum í gærkvöld og enn er hvasst í hviðum undir fjallinu. Eitt hjólhýsi fauk út af veginum laust eftir hádegi.

Hjólhýsin eru mjög mikið skemmd ef ekki ónýt. Þá segir sunnlendingur.is frá því að kerra hafi fokið á hliðina, skömmu áður en komið er inn til Selfoss.

Fjölmargir hafa lagt leið sína austur fyrir fjall í gær og í dag til að sækja hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna úr geymslum eftir veturinn. Lögregla hvetur fólk til að fara varlega og fylgjast með veðurspá.

Mynd sunnlendingur.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert