Aka utan vega í Árnessýslu

Fjórhjólum hefur fjölgað mikið hér á landi á síðustu árum.
Fjórhjólum hefur fjölgað mikið hér á landi á síðustu árum.

Lögreglan á Selfossi hefur fengið ábendingar um akstur fjórhjóla og torfæruhjóla utan vega og slóða á Hengilssvæðinu og víðar um Árnessýslu.  Akstur utan vega er bannaður og ætlar lögreglan að auka eftirlit með utanvegaakstri.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi segir að það ætti ekki að dyljast nokkrum manni að akstur af þessu tagi veldur gróðurspjöllum og það sem verra er að hver sá sem sér hjólför eftir annan telur sig mega nýta sér þau og þar með myndast á skömmum tíma slóði sem verður varanlegur. 

 Kvartanir hafa borist lögreglu alls staðar að úr Árnessýslu um akstur fjórhjóla um hollt og hæðir.  Um hverja helgi má sjá ökutæki með kerru sem á eru tvö eða fleiri torfærutæki streyma austur eftir Suðurlandsvegi svo ljóst má vera að talsverð aukning er á notkun þessar tækja.  Lögreglan skorar á ökumenn torfærutækja og jeppabifreiða að halda sig á vegum og viðurkenndum slóðum og hlífa náttúrunni.  Aðrir eru beðnir að standa vaktina með lögreglunni og gera viðvart verði þeir varir við akstur utan vega og eftir atvikum að taka ljósmyndir af ökutækjunum sem lögreglan gæti nýtt sér við rannsókn mála.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert