Krefja lífeyrissjóð svara vegna taps

Lífeyrissjóður Vestfirðinga er til húsa í Neista á Ísafirði.
Lífeyrissjóður Vestfirðinga er til húsa í Neista á Ísafirði. mynd/bb.is

Sautján sjóðfélagar í Lífeyrissjóði Vestfirðinga hafa farið fram á nánari upplýsingar frá stjórn sjóðsins vegna tap á rekstri sjóðsins á árinu 2008, en þá rýrnuðu eignir sjóðsins um tæp 30% og ávöxtun hans var neikvæð um 29%.

Í bréfinu er þess óskað að stjórnin skýri hvað hafi ráðið ákvörðun um fjárfestingu hverju sinni. „Jafnframt förum við fram á að stjórnin upplýsi hvaða forsendur lágu til grundvallar þeim breytingum sem stjórnin samþykkti á fjárfestingastefnu sjóðsins á fundi sínum 27. nóvember 2007 og fól m.a. í sér þá stefnu að hlutfall hlutabréfa í eignum sjóðsins verði aukið í allt að 50% á næstu árum eins og segir í ársreikningi fyrir 2007,“ segir í bréfinu.

Þá óska bréfritarar útskýringar stjórnarinnar hvernig markmið um að 50% eigna sjóðsins verði í hlutabréfum samrýmist eðlislægu hlutverki sjóðsins um að varðveita og ávaxta fjármuni sjóðfélaga af varkárni og með lágmarks áhættu.

Spurt er hvort og þá hverjir hafi verið faglegir ráðgjafar lífeyrissjóðsins við mótun og framkvæmd fjárfestingarstefnu hans. Ef engir hafi verið, hverjir réðu og mótuðu þá stefnuna. Einnig er spurt hvort starfsmenn og stjórnarmenn hafi þegið boðsferðir eða gjafir frá fyrirtækjum sem sjóðurinn hefur fjarfest í. Sé það raunin óskast upplýst hver eða hverjir voru gestgjafar, hvert var farið og hverjir tóku þátt í boðsferðum fyrir hönd sjóðsins.

Í svari stjórnar Lífeyrissjóðs Vestfirðinga er félögunum bent á ársfund sjóðsins sem haldinn verður í dag, 21. maí. Hann sé opinn öllum sjóðfélögum og lífeyrisþegum. Þá fari endurskoðandi sjóðsins yfir allar upplýsingar um stöðu fjárfestinga sjóðsins í kjölfar þeirra fjármálahamfara sem gengið hafi yfir veröldina og íslenskt efnahagslíf á undanförnum mánuðum, segir í bréfi til sjóðfélaganna. Allar þær upplýsingar sem sjóðfélagarnir hafi óskað eftir, verði lagðar fram á ársfundinum og öllum spurningum þar að lútandi svarað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert