Bændasamtökin brutu samkeppnislög
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að Bændasamtök Íslands hafi brotið samkeppnislög. Segir nefndin að verðlagning búvara sem ekki eru verðlagðar á grundvelli búvörulaga lúti „lögmálum hins frjálsa markaðar og þar með ákvæðum samkeppnislaga eins og samkeppnisyfirvöld hafa staðfest hvað eftir annað með úrskurðum þar að lútandi.“
Staðfesti nefndin einnig að BÍ hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum og taldi nefndin að um óvéfengjanlegt lögbrot hafi verið að ræða, að því er fram kemur á vef Samkeppniseftirlitsins.
Þar segir að áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafi talið hæfilegt að lækka sekt BÍ í sjö og hálfa milljón kr. Var í því sambandi vísað til þess að um fyrsta brot BÍ væri að ræða og að opinskáar umræður hefði lengi viðgengist á vettvangi BÍ án afskipta. Áfrýjunarnefnd taldi fyrirmæli Samkeppniseftirlitsins til BÍ um aðgerðir til að koma í veg fyrir að samskonar brot verði endurtekin of almenn og felldi þau úr gildi. Mun Samkeppniseftirlitið í kjölfar þessa úrskurðar setja sig í samband við BÍ til að tryggja að settar verði skýrar vinnureglur sem tryggi að á vettvangi BÍ eigi sér ekki aftur stað ólögmætt verðsamráð.
Þann 6. mars sl. komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Bændasamtök Íslands (BÍ) hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum. Átti brotið sér stað í tengslum við Búnaðarþing sem haldið var í mars 2008. Var brotið talið snúa að búvörum sem ekki lúta opinberri verðlagningu skv. búvörulögum, s.s. kjúklingum, eggjum, grænmeti og svínakjöti. Vegna þessa brots var BÍ gert að greiða 10.000.000 kr. stjórnvaldssekt og lagt fyrir BÍ að grípa til aðgerða til þess að koma í veg fyrir að samskonar brot verði endurtekin.
BÍ sættu sig ekki við þessa ákvörðun og skutu málinu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Samtökin telja sig ekki hafa brotið samkeppnislög og halda því fram að aðgerðir þeirra falli ekki undir ákvæði samkeppnislaga. Hafa BÍ í því sambandi vísað til ákvæða búvörulaga. Samkeppniseftirlitið hefur hins vegar byggt á því að samkeppni sé ætlað að tryggja hagsmuni almennings varðandi þær búvörur sem ekki lúta opinberri verðlagningu. Í málinu reyndi því á mikilvæg álitaefni varðandi samspil búvörulaga og samkeppnislaga.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 6. mars 2009, Innlent Bændasamtökin brutu samkeppnislög
- Fimmtudagur, 19. mars 2009, Innlent Bændasamtökin áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins
- Miðvikudagur, 14. október 2009, Innlent Hagar og Sena brutu samkeppnislög
- Fimmtudagur, 29. apríl 2010, Innlent Síminn sektaður um 50 milljónir
- Föstudagur, 6. mars 2009, Innlent Bændasamtökin telja að ekki sé um brot að ræða
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































