Innbrotsþjófur í tveggja vikna gæsluvarðhald

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær tvítugan karlmann, sem braust inn í hús í Hafnarfirði á sunnudag, í gæsluvarðhald til 15. júní. Sautján ára gamall félagi mannsins var sendur á Stuðla, sem er meðferðarstöð fyrir unglinga.

Maðurinn sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald er annar þeirra,  sem handtekinn var fyrir innbrot og rán í hús við Barðaströnd á Seltjarnarnesi í síðustu viku þar sem ráðist var á húsráðanda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert