Eiganda bíls kastað út og bílnum rænt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk á þriðja tímanum í nótt tilkynningu um að bíl hefði verið rænt á Kársnesbraut í Kópavogi. Samkvæmt tilkynningunni höfðu menn tekið eiganda bílsins með valdi út úr bílnum og ekið á brott.

Um er að ræða svartan BMW 325, árgerð 1994. Lögreglan segir ekki ljóst hvort bíleigandinn þekkti mennina, sem rændu bílnum en málið verði rannsakað í dag.

Þá var bláum Skoda Fabia bíl stolið af bílastæði við Dalsmára í Kópavog undir miðnætti í gærkvöldi. Hafði þjófurinn fyrst brotist inn í búningsklefa í íþróttahúsinu Fífunni og stolið þaðan lyklum að bílnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert