Önnur skjálftahrina

Jarðskjálftarnir eru á svipuðum slóðum og skjálftarnir, sem urðu fyrr …
Jarðskjálftarnir eru á svipuðum slóðum og skjálftarnir, sem urðu fyrr í kvöld.

Tveir snarpir skjálftar urðu klukkan 20:37, samkvæmt fyrstu tölum frá Veðurstofu Íslands mældust skjálftarnir 4,3 og 3,4 á Richter. Sá snarpari mun hafa verið á svipuðum slóðum og skjálftinn sem vart varð við klukkan 18:13 en óljóst er hvar hinn skjálftinn varð.

Verið er að fara yfir tölurnar en skjálftanna varð vart á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert