Ók á hurðir slökkviliðsins
Ökumaður olli stórtjóni á sex útkeyrsluhurðum hjá Slökkvistöð höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð í Reykjavík í kvöld. Ökumaðurinn ók á dyrnar og skemmdi þær.
Ekki er vitað hvað manninum gekk til en samkvæmt upplýsingum mbl.is hafði hann áður hótað að skaða lögreglumenn eða opinbera starfsmenn. Hann reyndi m.a. að aka inn í samskiptamiðstöð lögreglunnar við Skógarhlíð.
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri sagði í samtali við mbl.is í kvöld, að hurðir slökkvistöðvarinnar væru ónothæfar og því væri ekki hægt að koma slökkvibílunum út. Búið væri að virkja aðrar stöðvar í Reykjavík og því teldi hann að hættuástandi myndi ekki skapast þó að brunaboð kæmi í kvöld. Hann sagði að búið væri að kalla út viðgerðarmenn og reynt yrði að gera við til bráðabirgða í nótt.
Reynt var að stöðva manninn við Skógarhlíð, en það tókst ekki. Eftir að hafa ekið á hurðirnar ók maðurinn á miklum hraða eftir Bústaðavegi. Þar reyndi sjúkrabíll að stöðva manninn en hann hélt áfram eftir Snorrabraut, þar sem hann ók á bíl á leiðinni, og að lögreglustöðinni við Hverfisgötu þar sem lögreglubíll ók á bílinn og stöðvaði hann.
Maðurinn er núna í haldi lögreglu. Jón Viðar sagðist engar skýringar hafa á hegðun mannsins. Ljóst væri að hann hefði verið mjög einbeittur í því að vinna skemmdir á slökkvistöðinni. Hann hefði ekið ítrekað á hurðirnar.
Ekki er búið að meta fjárhagslegt tjón á slökkvistöðinni eða bílum lögreglunnar, en ljóst er að það skiptir milljónum.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason ÖRVÆNTINGIN OG VITFIRRINGIN TEKUR VÖLDIN, OG ER ÞETTA BARA BYRJUNIN ... -
Einar B Bragason Ók á dyr slökkviliðsins. Það verður að hjálpa fólkinu í ... -
Bara Steini Er borgin að springa. -
Soffía Sigurðardóttir Það sem ekki er í fréttinni -
Ari Guðmar Hallgrímsson Einkennilegar umgengisvenjur við Skógahlíðina : -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Aumingja maðurinn -
Stefán Friðrik Stefánsson Algjör vitfirring - mikilvægt atriði vantar í fréttina -
Eyjólfur Jónsson Er að koma fram!! -
Bergur Thorberg Gamanið kárnar -
Innlent »
- Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt
- „Engin minnihlutastjórn“
- ESB og Noregur taki sér 90% makrílkvótans
- Kjarval lækkar vöruverð
- Fresta innheimtu hesthúsaskatts
- Jón Ásgeir: Engir peningar teknir úr Sólarsjóði
- Með ekkert nema fötin utan á sér
- Hvorki fordómar né hatursáróður
- Tekjur lífeyrisþega hafa lækkað
-
Skart stöðvað á leið úr landi
- Jónas Þór: Lögmenn og réttarríkið
- Amnesty með samstöðufund
- Fagna inntökuprófum
- Lukkulegir lottóvinningshafar
- „Líflínan liggur í gegnum flugvöllinn“
- 8 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
- Furða sig á ummælum bæjarfulltrúa
- Boðið í heimsókn á þjóðarheimili
- Ögmundur gagnrýnir Sjónvarpið
- Samstaða er í skýjunum
- Páll Vilhjálmsson: Sértrúarsöfnuður
- Minni notkun, minna tjón
- Vilja áfram eiga aðild að stjórn lífeyrissjóða
- Erfitt að draga línuna
- Flughált í Flóanum
- Hefur ekki verið vísað til lögreglu
- Hálkublettir víða
- Sjö klukkustundir á sjúkrahús
- Soffía Anna: Lokun líknardeildar
- Maðurinn sætir geðrannsókn
- Eldri borgarar virkir á vinnumarkaði
- 3 nýir áfangastaðir Iceland Express
-
Brotinn en brattur brettakappi
- Þróunarmál rædd af ráðuneytisstjórum
- Margir vilja læra íslensku
- Séreignarsjóður skerðir ekki bætur
- Fundar áfram með Huang Nubo
- Styðja menntun í Úganda
- Lentu óvænt í heimafæðingu
- Samstaða með 21% fylgi
- Peningarnir vaxa á trjánum – fjárfesta í skógum jarðar
- Flughálka á Grindavíkurvegi
- Tillögur skila RÚV auknum tekjum
- Tveir réttindalausir í vímu
- Hælisleitendur laumuðu sér í skip
- Notfæra sér ný réttindi
- Sjóðsfélagar gagnrýndu forystu sjóðsins harðlega
- Flest fylltu sig við Grímsey
- Dæla CO2 aftur ofan í jörðina
- Hótað málsókn 20 sinnum
- 1.600 læra íslensku
- Éljagangur í suðvestanátt
- Aldagamlar hefðir í hættu
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent Bíður yfirheyrslu hjá lögreglu
- Þriðjudagur, 9. mars 2010, Innlent Í 26 mánaða fangelsi fyrir að aka á lögreglubíl
- Þriðjudagur, 23. júní 2009, Innlent Réttlætanlegt að nota sjúkrabíla
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent Grunur um fíkniefnaneyslu og ölvun
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent Færður á viðeigandi stofnun
-
Eyjólfur: Vilja sýna sig og sanna
-
Keppt í hugviti
-
Blaðamannafundur Lars Lagerbäck
-
Heimir: Erfiðara að velja Japanshópinn
-
Lagerbäck: Vildi taka þessa áhættu
-
Skart stöðvað á leið úr landi
-
Enn gýs í Eldhringnum
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi





































