Flöskuskeyti frá 1946 fannst undir gólffjölum

Haraldur H. Isaksen með bréfið og flöskuna.
Haraldur H. Isaksen með bréfið og flöskuna. Bæjarins besta.

Flöskuskeyti frá 1946 fannst undir gólffjölum gamla gagnfræðaskólans á Ísafirði. Voru það tveir smiðir sem settu flöskuna þar sér til gamans.

Fréttavefurinn Bæjarins besta greindi frá því á dögunum að flöskuskeyti hefði fundist undir gólffjölum í gamla gagnfræðaskólanum á Ísafirði. Var þar á ferð orðsending frá smiðunum Ágústi Guðmundssyni og Felix Tryggvasyni sem unnu að gólfinu árið 1946 en bréfið er dagsett 2. febrúar það ár. Hefur flaskan því verið undir gólfinu í 63 ár.

„Vissulega kom þetta á óvart. Það er óvenjulegt að finna flöskuskeyti svona langt inni í landi. Greinilega var það með vilja gert að skeytið myndi bíða eftir næstu framkvæmdum en það var sett ofan í gólfið í brennivínsflösku með tálguðum tappa,“ segir Hávarður Bernharðsson húsasmiður sem fann skeytið.

Hann segir að oft hafi menn sett peninga í hurðagafla og annað slíkt við framkvæmdir en aldrei áður hafi hann heyrt um flöskuskeyti. Hávarður hyggst búa til sýningarkassa úr gólffjölunum svo hægt sé að hafa flöskuskeytið til sýnis í skólanum um ókomna tíð.

Orðsendingin hljóðar eitthvað á þessa leið:

Góðir samlandar og frændur.

Við sem unnum að þessu gólfi færum ykkur kærar kveðjur. Okkur er ráðgáta hvenær þessar kveðjur berast ykkur.

Við biðjum að heilsa.

Ágúst Guðmundsson
yfirsmiður

Felix Tryggvason
trésmiður.

Vefurinn hefur nú birt meiri upplýsingar um annan smiðinn, Felix Tryggvason, og má sjá þær hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert