Grunaður um kynferðisbrot gegn börnum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar.

Rúmlega sjötugur karlmaður var yfirheyrður hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku vegna gruns um kynferðisbrot gegn 5 ára stúlku. Manninum var sleppt að lokinni yfirheyrslu.

Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins að lögreglan í Vestmannaeyjum veiti litlar upplýsingar um málið og segi það vera á viðkvæmu stigi.

DV sagði í dag, að fleiri stúlkur og konur hafi stigið fram og sagt manninn hafa misnotað þær sem börn. Þar á meðal er barnabarn mannsins kona sem nú er komin yfir tvítugt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert