Skattlagnin vaxtagreiðslna óráðleg

Viðskiptaráð lýsir yfir óánægju vegna fyrirhugaðrar skattlagningar á vaxtagreiðslum til erlendra aðila. Ráðið telur að löggjöfin muni takmarka enn frekar aðgengi fyrirtækja að erlendu lánsfjármagni.

Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem felur í sér fyrstu aðgerðir til að brúa fjárlagahalla ríkissjóðs á komandi misserum. Hefur Viðskiptaráð nú sent frá sér ályktun er varðar þann hluta frumvarpsins sem lýtur að skattlagningu vaxtagreiðslna til erlendra aðila.

Í ályktuninni segir að sambærilegar tillögur hafi verið kynntar til sögunnar af hálfu fjármálaráðuneytisins á síðastliðnu vorþingi en vegna rökstuddrar andstöðu fjölda aðila taldi efnahags- og skattanefnd tilefni til að skoða betur áhrif slíkrar skattlagningar og ákvað að fella ákvæðið úr frumvarpinu.

Markmið frumvarpsins þá voru af hinu góða, þ.e. að skerpa á framkvæmd og skilvirkni skattheimtu og draga úr skattaundanskotum. Ástæða andstöðu umsagnaraðila var hinsvegar að skattlagning í samræmi við frumvarpið hefði verulega skaðleg áhrif á samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, sem þegar er afar slök vegna núverandi efnahagsaðstæðna. Löggjöfin myndi takmarka frekar aðgengi þeirra að erlendu lánsfjármagni og gera það litla fjármagn sem í boði er mun dýrara.

Þá segir að því miður virðist ráðuneytið ekki hafa tekið athugsemdir og gögn umsagnaraðila í þessa veru til nánari athugunar líkt og efnahags- og skattanefnd lagði til í nefndaráliti sínu, en ákvæðið og athugasemdir frumvarpsins eru nær óbreyttar.

Mikilvægt sé að stjórnvöld taki tillit til þessara athugasemda og vinni að því að ná ásættanlegri niðurstöðu í þessu máli í góðri samvinnu við íslensk fyrirtæki. Neikvæðar afleiðingar þess að lögfesta skattlagningu vaxtagreiðsla séu margvíslegar og hafi lítið með vafasama viðskiptahætti að gera.

Í fyrsta lagi megi gera ráð fyrir að íslensk fyrirtæki muni í reynd bera þann skatt sem frumvarpið hyggst leggja á móttakanda vaxtagreiðslunnar; Í öðru lagi mun skattlagningin leggja Þránd í götu erlendrar fjárfestingar hérlendis og var þó staðan verulega slæm fyrir; Í þriðja lagi þá verður hér við lýði skattlagning sem þekkist ekki innan innri markaðar Evrópu og í fjórða lagi verði vegið að grundvelli afnáms gjaldeyrishafta hvað nýjar fjárfestingar varðar.

Fjárhagslegir hagsmunir ríkissjóðs af skattlagningunni séu afar takmarkaðir en eins og greint hefur verið frá geta neikvæðar afleiðingar þess orðið verulegar.

Viðskiptaráð hvetur því stjórnvöld til að fella út ákvæði frumvarpsins sem tekur til skattlagningar vaxtagreiðslna til erlendra aðila og endurmóta hana í samvinnu við atvinnulíf og aðra hagsmunaaðila.

Viðskiptaráð Íslands eru frjáls samtök félaga, fyrirtækja og einstaklinga í íslensku atvinnulífi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert