Allt tortryggilegt

Gunnar I. Birgisson.
Gunnar I. Birgisson. mbl.is/Eggert

„Ég held að helsta skýringin sé sú að komin er upp allt önnur staða og viðhorf í samfélaginu eftir efnahagshrunið. Í andrými dagsins í dag þykir allt tortryggilegt,“ segir Gunnar I. Birgisson, fráfarandi bæjarstjóri í Kópavogi í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Gunnari þykja pólitískir andstæðingar sínir og fjölmiðlar hafa farið offari í málinu. Hann segir vonlaust að verjast áhlaupi af þessu tagi.

„Þetta er eins konar múgsefjun. Það er bara keyrt á mann án þess að maður fái rönd við reist. Þetta hefur verið mikið álag á fjölskylduna, konu mína og ekki síst dóttur, sem komin er sjö mánuði á leið. Hún hefur tekið þetta mjög nærri sér. Fyrirtæki hennar hefur beðið verulegan hnekki af þessu máli og óvíst að hún geti starfað áfram í faginu.“

Hann óttast ekki lögreglurannsóknina sem stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar sætir. „Við vorum ekki að fremja neinn glæp. Hvað áttum við að hafa út úr þessu, stjórnarmennirnir? Ekkert."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert