Enn mikil umferð til borgarinnar

Enn er mjög þung umferð til Reykjavíkur um Suðurlandsveg og er bíll við bíl þar að sögn lögreglu. Á Vesturlandsvegi er einnig þung umferð ennþá en að sögn umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er hún ekki nándar eins mikil og á Suðurlandsvegi.

Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeildinni er umferðin í borgina óvenju mikil miðað við lokahelgi júní. Er umferðarþunginn á við það sem venjulegt þykir lokadag verslunarmannahelga.

Ekki hafa orðið nein óhöpp sem orð er á hafandi þrátt fyrir hinn mikla umferðarþunga utan bílveltu sem varð á Þingvallavegi síðdegis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert