Alcoa styrkir Norðursprota um tæpar 7 milljónir

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhendir Þorsteini Gunnarssyni, rektor Háskólans á Akureyri, styrk ... stækka

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhendir Þorsteini Gunnarssyni, rektor Háskólans á Akureyri, styrk Samfélagssjóðs Alcoa vegna Norðursprota í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum, Alcoa Foundation, veitti í dag Háskólanum á Akureyri 52.500 dollara styrk til að hrinda úr vör nýsköpunarverkefni sem hefur hlotið heitið Norðursprotar.

Alcoa á Íslandi, Háskólinn á Akureyri og Impra á Nýsköpunarmiðstöð efndu síðla vetrar til samstarfs um þetta verkefni, sem er ætlað að styðja nýsköpunarhugmyndir einstaklinga í atvinnuleit á Norðausturlandi og geta leitt til frekari atvinnutækifæra í landshlutanum. Styrkur samfélagssjóðsins svarar til rúmlega 6,7 milljóna króna miðað við gengi dagsins í dag.

Verkefnið Norðursprotar snýr að gerð viðskiptaáætlana og verður styrkurinn notaður til að standa undir kostnaði við gerð þeirra. Á þessu ári einbeitir sjóðurinn sér að verkefnum á Íslandi sem ýmist auðvelda einstaklingum lífið í kreppunni eða hvetja fólk til þátttöku í uppbyggjandi starfi og samveru. Sjóðurinn veitti Hjálparstarfi kirkjunnar styrk í upphafi þessa árs, en hann rann til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna atvinnumissis og kreppu. Að þessu sinni var ákveðið að styðja nýsköpun sem kann að leiða til fjölgunar starfa.

Samstarfið felur í sér að verkefnastjórar Impru á Nýsköpunarmiðstöð veita einstaklingunum ráðgjöf við framsetningu og ritun viðskiptaáætlana sinna og kennarar við viðskipta- og raunvísindadeild HA leggja einnig sitt af mörkum eftir því sem þörf krefur. Þá verður matsnefnd sem útdeilir styrknum skipuð fólki frá Háskólanum á Akureyri, Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Alcoa Fjarðaáli.

Uppbyggjandi verkefni

Það var Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi sem afhenti Þorsteini Gunnarssyni, rektor Háskólans á Akureyri, styrk Samfélagssjóðs Alcoa vegna Norðursprota. Var styrkurinn afhentur í húsakynnum rafverktakafyrirtækisins RAF á Akureyri, sem hóf göngu sína sem sprotafyrirtæki og hefur vaxið og dafnað síðan, m.a. undir handleiðslu Impru á Nýsköpunarmiðstöð, og þar starfa nú ellefu manns. Tómas Már sagði við afhendinguna að það væri sérstakt ánægjuefni að sjóðurinn hefði ákveðið að styrkja nýsköpun og uppbyggingu á Norðausturlandi með þessum hætti og sagðist vona að framlagið stuðlaði að frekari uppbyggingu svæðisins. Þorsteinn Gunnarsson, sem lætur af starfi rektors við Háskólann á Akureyri um mánaðamótin eftir 15 ára í embætti, sagði styrkinn koma í mjög góðar þarfir við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu sem hefur orðið fyrir áföllum í kjölfar efnahagshrunsins.

Auglýst eftir umsóknum

Impra á Nýsköpunarmiðstöð mun annast framkvæmd verkefnisins í samstarfi við Háskólann á Akureyri og á næstunni verður auglýst eftir umsóknum frá einstaklingum á Norðausturlandi. Er gert ráð fyrir að unnt verði að styrkja á bilinu 12 til 15 umsækjendur til gerðar viðskiptaáætlunar fyrir nýsköpunarhugmynd þeirra. Styrkirnir nema allt að 400 þús. krónum til hvers og eins sem fær styrk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsbíll til sölu - Fiat, Sharky L7
2007 árgerð af Sharky L7 til sölu. Keyrður 24þ km. Vel viðhaldið og þjónustubók ...
Til sölu starex 2.5 Dísel
Er með Hyunday H-1 starex 4x4 skráður 02.2000 skráður 7manna ekin 191 þús. Er ný...
HÓPFERÐABÍLAR
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...