Stjórnlagaþing 17. júní 2010

Stjórnlagaþingið á að koma saman á 17. júní á næsta …
Stjórnlagaþingið á að koma saman á 17. júní á næsta ári. mbl.is/Kristinn

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp forsætisráðherra um ráðgefandi stjórnlagaþing til samræmis við 100 daga áætlun stjórnarinnar. Ráðgert er að þingið komi saman til fyrsta fundar þann 17. júní 2010.

Frumvarpið er samið af Björgu Thorarensen lagaprófessor í samráði við fulltrúa allra þingflokka. Forsætisráðuneytið segir, að með því sé brugðist við óskum um breytingar á stjórnarskrá, sem ekki hafi náðst að knýja fram þrátt fyrir yfirlýstan vilja stjórnmálaflokka þar um á undanförnum áratugum.

Kostar 360 milljónir

Fjármálaráðuneytið áætlar að kostnaður við stjórnlagaþingið verði um 360 milljónir króna. Í fyrstu áætlunum var talið að kostnaður yrði á bilinu 1–2 milljarðar króna.

Gert er ráð fyrir að stjórnlagaþingið verði kallað saman á þjóðhátíðardaginn 2010 og að til þess verði kosið með persónukjöri sem fram fari samhliða sveitarstjórnarkosningum það sama vor.

Samkvæmt frumvarpinu er ráðgert að stjórnlagaþing taki sérstaklega til skoðunar efnisatriði sem staðið hafa nær óbreytt allt frá setningu stjórnarskrárinnar 1874 og varða grunnhugtök íslensks stjórnskipulags, þingræðisregluna, þrískiptingu ríkisvaldsins, skipan löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins og tengsl þeirra innbyrðis, sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkisvaldsins, ákvæði um kosningar og kjördæmaskipan og þátttöku almennings í lýðræði.

Þingið getur þó jafnframt tekið til endurskoðunar hvaðeina annað sem það kýs eða lagt til að bætt verði við stjórnarskrána nýjum ákvæðum eða köflum.

Ráðgert er að þingið komi saman til fyrsta fundar þann 17. júní 2010 og að það ljúki störfum 17. febrúar 2011 en Alþingi getur framlengt starfstímann um allt að þrjá mánuði. Tillögum þingsins er ætlað að vera ráðgefandi fyrir Alþingi og skal frumvarp sem stjórnlagaþing samþykkir sent Alþingi til meðferðar.

Fulltrúar kosnir næsta vor 

Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fulltrúar á stjórnlagaþingi verði kosnir persónukosningu samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum vorið 2010. Í frumvarpinu eru gerðar ítarlegar tillögur um framkvæmd persónukjörsins sem miða að því að endurspegla afstöðu kjósenda til frambjóðenda eins vel og unnt er um leið og stuðlað verður að jöfnu hlutfalli karla og kvenna eins og kostur er í hópi þingfulltrúanna.

Lagt er til að þingið komi saman í þrígang, fyrst til að kjósa í nefndir og skipuleggja störf þeirra og samþykkja verkáætlun, annað skiptið verði nýtt til að ræða framkomnar tillögur nefnda og það þriðja til að taka til meðferðar og samþykkja frumvarp til stjórnarskipunarlaga.

Forseti stjórnlagaþings sem kjörinn er á fyrsta fundi þess er æðsti embættismaður þingsins og leiðir hann jafnframt forsætisnefnd. Þá ber hann ábyrgð á rekstri stjórnlagaþings og fer með æðsta vald í stjórnsýslu þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert