Sjóblaut bókhaldsgögn á Breiðdalsvík

Fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækið Fossvík ehf. á Breiðdalsvík
Fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækið Fossvík ehf. á Breiðdalsvík mbl.is/Steinunn

Mappa með bókhaldsgögnum frá útgerðarfélaginu Fossvík fannst sjóblaut á Breiðdalsvík fyrr í vikunni. Mappan er merkt fyrirtækinu og í henni reikningar stílaðir á það. Starfsmenn hreppsins fundu möppuna úti á brimvarnargarðinum skammt frá áhaldahúsinu. Þar í grenndinni er einnig ruslagámur sem krakkar eiga það til að tína úr. Þetta kemur fram á vefnum Austurglugginn.

Ekki er vitað hvernig mappan komst upp á brimvarnargarðinn. Reynt var að þurrka hana í gær í von um að geta skoðað gögnin nánar.

Fossvík ehf. var stofnuð árið 2002. Héraðsdómur Austurlands úrskurðaði fyrirtækið gjaldþrota í apríl. Skiptafundur var haldinn í seinustu viku. Húsnæði Fossvíkur var rýmt í vetur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert