Af stað til Vopnafjarðar

Mjöltankar HB Granda.
Mjöltankar HB Granda. HB Grandi / Sigurður Gunnarsson

Dráttarbátur og prammi með tíu 22 metra háa mjöltanka og annan búnað úr  fiskmjölsverksmiðju HB Granda í Reykjavík, létu úr Reykjavíkurhöfn í kvöld. Ferðinni er heitið til Vopnafjarðar, þar sem tönkunum hefur verið valinn framtíðarstaður.

Umfang flutningsins umtalsvert. Hver tankur er jafn hár og sjö hæða hús og í öryggisskyni var ákveðið að rafsjóða þá fasta við þilfarið á prammanum, að því er kemur fram í frétt HB Granda. Þegar allt er talið vegur farmurinn um 600 tonn. Stefnt er að því að siglingin til Vopnafjarðar taki um tvo sólarhringa og því ættu dráttarbáturinn og pramminn að vera komnir á leiðarenda síðdegis á laugardag. Stefnt er að því að uppskipun hefjist á sunnudag.

Það er Héðinn hf. sem hefur borið veg og vanda að undirbúningi þessa verkefnis, í samvinnu við starfsmenn HB Granda, og norskir undirverktakar þess fyrirtækis sjá um sjálfan flutninginn. Héðinn hf. mun einnig sjá um uppsetningu á mjöltönkunum og öðrum búnaði á Vopnafirði.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert