Flókin þyrluaðgerð við Patreksfjörð

Sigið úr TF-LIF þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Sigið úr TF-LIF þyrlu Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Dagur

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í kvöld konu um borð í erlenda skólaskútu sem stödd var við mynni Patreksfjarðar. Þyrlan var stödd á Ísafirði er beiðni um aðstoð barst en konan hafði veikst og var hún mjög þjáð.

Töluvert flókið er að sækja fólk, sem statt er um borð í skútu, í þyrlu. Konan var því færð um borð í léttbát ásamt aðstoðarmanni þangað sem hún var síðan sótt um borð í þyrluna. Er það töluvert nákvæmnisverk þar sem báturinn þarf að vera í togi á ákveðinni ferð til að honum hvolfi ekki undan vindi frá spöðum þyrlunnar.

Aðgerðin tókst vel og var komið með konuna á Borgarspítalann í Reykjavík skömmu eftir klukkan níu í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert