Munum tala eins lengi og þarf

Þingmenn hlýða á ræður um Icesave-málið á Alþingi.
Þingmenn hlýða á ræður um Icesave-málið á Alþingi. mbl.is/Eggert

,,Við munum taka þann tíma sem þarf og við munum standa hér og tala eins lengi og þarf ef það verður til þess að við sjáum að við getum bjargað því sem bjargað verður,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, við umræður um Icesave-frumvarpið á Alþingi eftir hádegi í dag.

Guðlaugur Þór sagði að fara þyrfti vel yfir málið í fjárlaganefnd á milli 2. og 3. umræðu og skoða alla þætti. „Sjálfstæðisflokkurinn mun gera allt til þess að ganga þannig frá málinu, að enginn vafi sé á því að þingið hafi sett þá fyrirvara sem afstýra þeirri hættu sem liggur undir ef þessi samningur verður samþykktur óbreyttur,“ sagði hann.

Sagði hann að allar viðvörunarbjöllur hefðu kviknað þegar Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, sagði í þingræðu í morgun að Icesave-samningurinn stæði óbreyttur, þrátt fyrir fyrirvara fjárlaganefndar.

Fram kom í máli Guðlaugs Þórs og einnig í máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, sem kom í ræðustól í andsvari við ræðu Guðlaugs, að ekkert samkomulag hefði verið gert um að ljúka afgreiðslu Icesave-frumvarpsins á Alþingi á morgun.

Guðlaugur Þór sagði að talað væri um að stjórnarandstæðingar ætluðu að tefja málið. „Þá lýsi ég því bara yfir hér, að ég er tilbúinn að tefja málið. Menn geta kallað það hvað sem er. Ég ætla ekki að fara héðan án þess að vera búinn að gera allt það sem ég get til þess að ganga þannig frá málinu að það sé eins skothelt og það getur orðið. Ef það þýðir að ég þarf að halda gríðarlega margar ræður hér, þá mun ég halda gríðarlega margar ræður, því ég mun gera allt til þess að sjá til þess að þetta verði unnið eins vel og mögulegt er. Ég hvet alla þingmenn til þess að nálgast þetta verkefni með sama hætti,“ sagði Guðlaugur Þór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert