Vegaframkvæmdir í höfuðborginni

Hafnar eru framkvæmdir við gatnamót Kringlumýrarbrautar, Laugavegs og Suðurlandsbrautar, sem …
Hafnar eru framkvæmdir við gatnamót Kringlumýrarbrautar, Laugavegs og Suðurlandsbrautar, sem miða að því að auka öryggi þar. Umrædd gatnamót hafa um langa hríð verið með þeim hættulegustu í höfuðborginni. Heiðar Kristjánsson

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eru vegir greiðfærir um allt land þótt þungatakmarkanir séu á einstaka leiðum.

Nú standa yfir framkvæmdir við gerð nýrrar akreinar fyrir strætisvanga á Miklubraut milli Stakkahlíðar og Kringlumýrarbrautar. Ljóst er að einhverjar tafir geta orði á umferð á leið austur Miklubraut og að gatnamótum
Kringlumýrarbrautar. Loka þarf gönguleiðum tímabundið á  meðan unnið er á þessu svæði og eru gangandi vegfarendur beðnir um að nota gönguleið við Stigahlíð á meðan. Áætluð verk lok eru 1. október 2009

Verið er að breyta gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar/Laugavegar.  Framkvæmdinni er skipt í áfanga og
verða einstaka akreinar á gatnamótunum lokaðar tímabundið eða þrengt að á afmörkuðum svæðum. Að auki þarf að loka stöku gönguleiðum tímabundið. Áætluð verklok eru 1. nóvember 2009.

Vegna endurbóta á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns verður Borgartún austan Kringlumýrarbrautar að Laugarnesvegi lokað fram undir miðjan október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert