Svanhildur til Sjálfstæðisflokks

Svanhildur Hólm Valsdóttir.
Svanhildur Hólm Valsdóttir.

Svanhildur Hólm Valsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra þingflokks sjálfstæðismanna. Hún tekur við af Árna Helgasyni, sem gegndi starfinu frá 2007 en hefur nú ráðið sig til starfa hjá JS lögmönnum.

Svanhildur er lögfræðingur að mennt, en hefur um langt árabil starfað við fjölmiðla. Eiginmaður Svanhildar er Logi Bergmann Eiðsson, fréttamaður og eiga þau sex börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert