Alvarlegar ásakanir á hendur kjötiðnaði og verslun
Samtök iðnaðarins segja að Þórarinn Jónsson, bóndi á Hálsi í Kjós, hljóti að geta fært rök fyrir þeim fullyrðingum sínum að víða sé þyngdaraukandi og vatnsbindandi efnum blandað í nautahakk. Geti hann það ekki, eigi hann umsvifalaust að draga orð sín til baka.
Samtök iðnaðarins hafa sent frá sér athugasemd vegna fréttar sem birtist á mbl.is í morgun og ber yfirskriftina „Hreint og ómengað nautakjöt“. Samtökin segja að í fréttinni komi fram mjög alvarlegar ásakanir á hendur íslenskum kjötiðnaði og verslun.
„Viðmælandinn, Þórarinn Jónsson bóndi, heldur því fram án þess að færa rök fyrir eða nefna dæmi um að víða sé þyngdaraukandi, vatnsbindandi efnum blandað saman við nautakjöt og að það sé opinbert leyndarmál að það sé bætt hrossakjöti, svínafitu, kartöflumjöli og öðru því sem mönnum detti í hug, saman við nautahakk. Samtökum iðnaðarins er ekki kunnugt um íblöndun slíkra hráefna í nautahakk án þess að þess sé getið. Ef um blandað hakk er að ræða þá á að geta þess í merkingum á umbúðum. Viti viðmælandi mbl.is dæmi um annað ætti hann að geta fært rök fyrir því og þá þurfa yfirvöld að taka á því með viðeigandi hætti. Geti hann ekki fært rök fyrir því ætti hann umsvifalaust að draga orð sín til baka,“ segir í athugasemd Samtaka iðnaðarins.
Fyrr í dag sögðu Neytendasamtökin að kanna yrði fullyrðingar bóndans þegar í stað. Um væri að ræða það alvarlegar ásakanir að eðlilegt væri að Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga könnuðu málið. Það væri með öllu óþolandi ef verið væri að svindla á neytendum.
Matvælastofnun benti í samtali við mbl.is á að eftirlit á markaði væri í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga, undir yfirumsjón Matvælastofnunar. Eftirlitssvæðin eru tíu talsins og á heilbrigðiseftirlit m.a. að fylgjast með innihaldi og merkingum matvæla.
Ekki náðist í deildarstjóra matvælaeftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þegar eftir því var leitað.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Guðjónsson Nautakjöt -
Jón Snæbjörnsson Varið ykkur nú .......... -
Skúli Guðbjarnarson Beikonsósa -
Jóhann Elíasson "Ásakanirnar eru SÍÐUR EN SVO orðum auknar"!!!!!!! -
Haukur Gunnarsson Það er búið að ljúga svo oft að okkur. -
Hjalti Elíasson Sendiboðinn skotinn. -
Guðbjörn Jónsson Hvernig sannar maður vatn í kjötinu sem maður borðaði í ...
Innlent »
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. september 2009, Innlent Rannsaka verði fullyrðingar um aukaefni í nautahakki
- Fimmtudagur, 10. september 2009, Innlent Fagnar umfjöllun um meðhöndlun nautakjöts
- Fimmtudagur, 10. september 2009, Innlent Hrein og ómenguð nautasteik
- Föstudagur, 11. september 2009, Innlent Segja engar vísbendingar um brot á reglum um kjöt
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent Þjónusta í rúma öld er á enda
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































