Tóbak verði tekið úr almennri sölu
Að meðaltali deyr einn Íslendingur úr reykingasjúkdómum á degi hverjum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Tóbaksvarnaþing Læknafélags Íslands samþykkti ályktun þar sem hvatt er til þess að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að taka tóbak alfarið úr almennri sölu.
Þingið hvatti til þess að reykingamenn og þeir sem ekki reykja, sýndu hver öðrum skilning, virðingu og tillitssemi. Tekið var fram að ályktanir þingsins beindust ekki gegn reykingamönnum. Þingið lagði áherslu á að best væri að hefja aldrei reykingar og ólíðandi væri að daglega ánetjuðust 2-3 ungmenni nikótíni hérlendis. Aðgerðirnar ættu ekki síst að beinast að því að minnka nýliðun reykingamanna.
Tóbaksvarnaþingið lagði fram tillögur í nokkrum liðum:
"• Að hætta sölu tóbaks í matvöruverslunum og á bensínstöðvum fyrir árslok árið
2010.
• Að hætta sölu tóbaks í söluturnum árið 2012.
• Stefna að því að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að taka tóbak alfarið
úr almennri sölu.
• Nýjar dreifingar og söluleiðir á tóbaki (t.d. öll sjálfsafgreiðsla) verði óheimilar.
• Tóbak verði tekið úr sölu í fríhöfnum íslenskra flugvalla.
• Aldur til að geta keypt tóbak verði hækkaður í 20 ár fyrir árslok 2010.
• Aldur til að afgreiða tóbak verði hækkaður í 20 ár fyrir árslok 2010.
• Að hnykkt verði á banni við að auglýsa eða selja varning með nafni eða merki
sem tóbak er einnig fáanlegt undir.
• Auglýsingar, t.d. á kappakstursbílum eða í íþróttaútsendingum, verði takmarkaðar með því að skylt verði að útmá auglýsingarnar í t.d. sjónvarpsútsendingu eða tímariti.
• Þingið telur óæskilegt að leikarar reyki í íslenskum bíómyndum og á leiksviðum.
• Vernda þarf hópa sem enn eru útsettir fyrir óbeinum reykingum s.s. fangar,
fangaverðir og starfsmenn vistheimila.
• Stefnt verði að því að afnema reykingar á almannafæri.
• Að taka tóbak út úr vísitöluútreikningi.
• Stefnt skal að því að útsöluverð á tóbaki standi undir samfélagslegum kostnaði
við neyslu þess.
Nikótin er skilgreint sem lyf skv lögum, en þingið leggur til að nikótín og tóbak verði einnig skilgreind sem ávana- og fíkniefni.
Komið verði á fót embætti Tóbaksvarnarlæknis sem hafi það hlutverk að sporna við tóbaksfaraldrinum og hafi valdheimildir að fyrirmynd Sóttvarnarlæknis.
Sveitarfélög og heilbrigðisnefndir eru hvattar til að ganga með ákveðnari hætti fram í að lögum og reglum sé framfylgt. Rekstrarleyfi tóbakssöluhafa verði skilyrðislaust innkölluð við brot."
Bloggað um fréttina
-
Alexander Kristófer Gústafsson Kommunista óþverrar -
Reynir W Lord Frábær hugmynd, og mikill sparnaður fyrir þjóð -
Guðrún María Óskarsdóttir. Íslenskir læknar á villigötum, gleyma offitu, áfengi og tannheilsu. -
Kerlan WTF? -
Hrafn Arnarson Ísland verður reyklaust land ! -
Gunnar Ásgeir Ásgeirsson Reykingar -
Baldur Sigurðarson Sumir myndu kalla þetta forræðishyggju... en það geri ég ekki. -
Ragnar Ragnars Afhverju að bíða með þetta -
Jón Á Grétarsson Sykur er meiri skaðvaldur -
Þórarinn Þ Gíslason ÞETTA ER EIGINLEGA STÆRSTA MÁLIÐ FYRIR ÞJÓÐINA OG ER ÞÁ ... -
Guðrún Una Jónsdóttir Nú er tækifærið ! -
Arngrímur Stefánsson Þvílík forræðishyggja!!! -
-
Ástþór Ingi Pétursson Góð byrjun! -
Valgeir Árnason BURT MEÐ SÓÐANNA! -
-
Jón Aðalsteinn Jónsson Og veröldin fer í hring. -
Katrín Er menntun forheimskandi?? -
Jón Snæbjörnsson Svo má gera enn betur -
Ásgrímur Hartmannsson Gósentíð smyglara í vændum -
Héðinn Ólafsson Heyr heyr -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Óþolandi forræðishyggja -
Bara Steini bANNA..... -
-
fingurbjorg if I only had a match.....
Innlent »
- Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt
- „Engin minnihlutastjórn“
- ESB og Noregur taki sér 90% makrílkvótans
- Kjarval lækkar vöruverð
- Fresta innheimtu hesthúsaskatts
- Jón Ásgeir: Engir peningar teknir úr Sólarsjóði
- Með ekkert nema fötin utan á sér
- Hvorki fordómar né hatursáróður
- Tekjur lífeyrisþega hafa lækkað
-
Skart stöðvað á leið úr landi
- Jónas Þór: Lögmenn og réttarríkið
- Amnesty með samstöðufund
- Fagna inntökuprófum
- Lukkulegir lottóvinningshafar
- „Líflínan liggur í gegnum flugvöllinn“
- 8 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
- Furða sig á ummælum bæjarfulltrúa
- Boðið í heimsókn á þjóðarheimili
- Ögmundur gagnrýnir Sjónvarpið
- Samstaða er í skýjunum
- Páll Vilhjálmsson: Sértrúarsöfnuður
- Minni notkun, minna tjón
- Vilja áfram eiga aðild að stjórn lífeyrissjóða
- Erfitt að draga línuna
- Flughált í Flóanum
- Hefur ekki verið vísað til lögreglu
- Hálkublettir víða
- Sjö klukkustundir á sjúkrahús
- Soffía Anna: Lokun líknardeildar
- Maðurinn sætir geðrannsókn
- Eldri borgarar virkir á vinnumarkaði
- 3 nýir áfangastaðir Iceland Express
-
Brotinn en brattur brettakappi
- Þróunarmál rædd af ráðuneytisstjórum
- Margir vilja læra íslensku
- Séreignarsjóður skerðir ekki bætur
- Fundar áfram með Huang Nubo
- Styðja menntun í Úganda
- Lentu óvænt í heimafæðingu
- Samstaða með 21% fylgi
- Peningarnir vaxa á trjánum – fjárfesta í skógum jarðar
- Flughálka á Grindavíkurvegi
- Tillögur skila RÚV auknum tekjum
- Tveir réttindalausir í vímu
- Hælisleitendur laumuðu sér í skip
- Notfæra sér ný réttindi
- Sjóðsfélagar gagnrýndu forystu sjóðsins harðlega
- Flest fylltu sig við Grímsey
- Dæla CO2 aftur ofan í jörðina
- Hótað málsókn 20 sinnum
- 1.600 læra íslensku
- Éljagangur í suðvestanátt
- Aldagamlar hefðir í hættu
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 16. september 2009, Innlent Heimdallur andvígur sölubanni á tóbaki
- Miðvikudagur, 22. apríl 2009, Innlent 60% seldu unglingum tóbak í Hafnarfirði
- Mánudagur, 7. september 2009, Innlent Hugmynd um að banna tóbakssölu
- Mánudagur, 29. september 2008, Innlent Tóbak verði aðeins afgreitt gegn lyfseðli
- Fimmtudagur, 20. maí 2010, Innlent Unglingar gátu keypt tóbak í 6 búðum
-
Eyjólfur: Vilja sýna sig og sanna
-
Keppt í hugviti
-
Blaðamannafundur Lars Lagerbäck
-
Heimir: Erfiðara að velja Japanshópinn
-
Lagerbäck: Vildi taka þessa áhættu
-
Skart stöðvað á leið úr landi
-
Enn gýs í Eldhringnum
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi




































