„Flokksræðið er krabbameinið“

Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður.
Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður. mbl.is

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, segir það misskilning hjá ríkisstjórninni að frumvörp hennar um persónukjör boði nauðsynlegar úrbætur.  „Persónukjörið, sem þar er teiknað upp , er sjónhverfing og verndar gamla flokksræðið,“ segir Kristinn í nýjum pistli á heimasíðu sinni.

Kristinn segir að eftir bankahrunið séu smátt og smátt að koma í ljós alvarlegir gallar á lýðræðinu hér á landi. „Vandi þjóðarinnar liggur ekki bara í því að of margir stjórnendur og eigendur fjármálafyrirtækjanna voru ófyrirleitnir, óheiðarlegir og vanhæfir. Eftirlitskerfið réði ekki við verk sitt, yfirmenn voru ráðnir eftir pólitískri forskrift. Það á við um viðskiptabankana lengst af, Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið. Áhrif þeirra, sem voru undir eftirliti, á framkvæmdavaldið og Alþingi voru of mikil. Þau áhrif réðu miklu um löggjöf og útfærslu hennar,“ segir þingmaðurinn fyrrverandi.

Kristinn segir að einkavæðing bankanna, sem átti að verða leið frá pólitískum áhrifum fárra útvaldra, hafi aldrei orðið það. „Þegar til kom vildu þeir sem nota flokkana í sína þágu ekki sleppa takinu og þáverandi stjórnarflokkar afhentu bankana útvöldum.“

Samtryggingin sá svo um það að kaupin voru aðeins til málamynda, segir Kristinn, kaupverðið greitt seint og illa og fengið að láni. „Einkavæðingin varð afhending en ekki sala. Upphafið var byggt á óheilindum og framhaldið varð eftir því. Það voru stjórnmálaflokkarnir sem gerðu þetta mögulegt. Flokksræðið innan þeirra er helsta meinsemdin. Það færir fáum mikið vald og því valdi verður að lúta skilyrðislaust. Sá sem rís gegn því verður utangarðsmaður í flokknum og fáum, ef nokkrum, hefur tekist að halda velli til lengdar í andstöðu við forystuna burtséð frá málefnastöðu.“

Kristinn segir það verða að viðurkennast að spilling hafi viðgengist í stjórnmálaflokkunum. „Einkavæðing ríkisfyrirtækja er skýrasta dæmið um það. Framsalið í kvótakerfinu er annað. Það má líka benda á sveitastjórnarstigið. Fjársterkið aðilar hafa sett mikið fé í kosningasjóði einstakra frambjóðenda og flokka svo sem fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006. Það er ekki einleikið hvað tregðan við að gera opinskátt hverjir greiddu og hve mikið í framboð einstaklinga er mikil og vettlingatök flokkanna á málinu eru átakanleg. Á eftir framlögunum í kosningasjóðina kom REI málið.“

Þingmaðurinn fyrrverandi segir flokkana hrædda við kjósendur. „Þeir treysta ekki kjósandanum til þess að velja fulltrúa sína og ríghalda í kosningafyrirkomulagið sem hefur verið í gildi síðustu hálfa öldina. Það er alls endis óvíst að þeim verði að ósk sinni. Þegar orsakir bankahrunsins verða betur ljósar, framkomin skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis og lokið rannsóknum sérstakra saksóknara verður sjálft stjórnmálakerfið komið í sviðsljósið og krafist verður endurbóta á því,“ segir Kristinn.

Hann endar pistilinn á þessum orðum: „Í síðustu alþingiskosningum urðu straumhvörf. Kjósendur sýndu sjálfstæði sitt og kröfu um breytingar á þann hátt að ekki verður misskilið. Fylgi flokkarnir ekki eftir þeim kröfum og breyti sjálfum sér munu nýir flokkar yfirtaka hlutverk þeirra. Flokksræðið er krabbameinið í íslenskum stjórnmálum sem þarf að uppræta.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert