Greiðsluverkfall hafið

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna telur að stjórnvöld hafi ekki gengið nógu langt til hjálpar skuldsettum heimildum og tillögurnar sem kynntar voru í gær séu ófullnægjandi. Greiðsluverkfallið sé því hafið.

Þórður B. Sigurðsson, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, segir að fyllsta ástæða sé til þess að óska landsmönnum til hamingju með daginn þar sem fyrsta greiðsluverkfall sögunnar sé skollið á. Það sé mikilvægt skref í kjarabaráttunni. Stjórnin sé að fara vandlega yfir tillögur stjórnvalda og láti í sér heyra fljótlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert