Áttaði sig ekki á sjávarföllum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft uppi á eigenda jeppabifreiðar sem var dregin upp úr sjónum við Geldinganes í morgun. Í ljós hefur komið að sonur eigandans festi bílinn í fjöru í gærkvöldi. Hann skildi bifreiðina eftir og ætlaði að sækja hana seinna. Þá flæddi hins vegar með fyrrgreindum afleiðingum.

Ekki liggur fyrir með tjón á bifreiðinni, en ljóst er að sjór flæddi inn í hana. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert