Hættir hjá Krabbameinsfélaginu

Guðrún Agnarsdóttir
Guðrún Agnarsdóttir mbl.is/Golli

Guðrún Agnarsdóttir hefur óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri Krabbameinsfélagsins um næstu áramót. Starf forstjóra verður auglýst á næstunni.

Guðrún hefur verið forstjóri Krabbameinsfélagsins frá árinu 1992, eða í 17 ár, en þar á undan átti hún sæti í framkvæmdastjórn Krabbameinsfélagsins í fjögur ár, frá 1988 til 1992. Guðrún segir í tilkynningu frá félaginu að það hafi verið forréttindi að fá að vinna að málstaðnum en nú sé orðið tímabært að huga að starfslokum.  Hún eigi stóran hóp barnabarna, hún og eiginmaður hennar séu skógarbændur fyrir norðan og finnist henni mál að sinna því betur sem og öðrum áhugamálum.

Krabbameinsfélagið stendur á vissum tímamótum um þessar mundir þar sem verið er að leggja lokahönd á nýja stefnumótun félagsins. Guðrún segir fara vel á því að nýr forstjóri taki að sér að framkvæma og leiða það umfangsmikla starf sem er framundan. Félagið hafi náð miklum árangri á þeim rúmu tveimur áratugum sem hún hefur tekið þátt í starfi Krabbameinsfélagsins og það sé einlæg ósk hennar að félagið megi áfram vaxa og dafna, þjóðinni til heilla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert