6% atvinnuleysi á þriðja ársfjórðungi

Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var …
Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45,3 klst. en 23,9 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi. mbl.is/Brynjar Gauti

Á þriðja ársfjórðungi voru að meðaltali 10.900 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6% vinnuaflsins, samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Atvinnuleysi mældist 6,5% hjá körlum og 5,4% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 12,3%. Frá þriðja ársfjórðungi 2008 til annars ársfjórðungs 2009 fjölgaði atvinnulausum um 6100 manns.

Miklu meira atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni

Á þriðja ársfjórðungi 2009 var atvinnuleysi 7,1% á höfuðborgarsvæðinu en 4% utan þess, að sögn Hagstofunnar.

Á þriðja ársfjórðungi 2009 höfðu 4100 atvinnulausir annað hvort fundið vinnu sem hefst síðar eða leitað í tvo mánuði eða skemur sem var svipaður fjöldi og árið áður. Þeim sem höfðu leitað að vinnu í 3 mánuði eða lengur fjölgaði úr 700 í 6800 frá þriðja ársfjórðungi 2008 til þriðja ársfjórðungs 2009.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða.

Starfandi fólki fækkar um 12.300

Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2009 var 171.500 manns og fækkaði um 12.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 182.500 manns sem jafngildir 82,1% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 85,8% og kvenna 78,2%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á þriðja ársfjórðungi 2008 voru alls 188.500 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 83,7%. Atvinnuþátttaka karla var 88,2% og kvenna 78,9%.

Á þriðja ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 40,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45 klst. hjá körlum en 35,9 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45,3 klst. en 23,9 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á þriðja ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 43,6 klst., 48,2 klst. hjá körlum en 37,7 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,1 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 25,4 klst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert