Brottvísun hælisleitenda ekki geðþóttaákvörðun
Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, sagði á Alþingi í dag að ákvörðun um málefni hælisleitenda hér á landi byggðist á lögum og reglum og almennum mælikvörðum en væri ekki geðþóttaákvörðun ráðherra.
Ragna var að svara fyrirspurn frá Önnu Pálu Sverrisdóttur, varaþingmanni Samfylkingarinnar, sem spurði um málefni þriggja hælisleitenda, tveggja frá Írak og eins frá Afganistans, sem nú ætti að endursenda til Grikklands.
Hópur fólks mótmælti þessari ákvörðun í gærkvöldi, fyrst utan við lögreglustöðina við Hlemm og síðan utan við heimili Rögnu. Anna Pála tók fram að slíkt brot gegn friðhelgi einkalífs ráðherrans væri óviðunandi.
Anna Pála spurðu hvort ráðherrann teldi réttlætanlegt að senda mennina til Grikklands og hvort álits Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hefði verið leitað varðandi þessa þrjá menn. Sagði Anna Pála að flóttamannastofnunin væri almenn andvíg því að senda flóttamenn til Grikklands.
Anna Pála sagði, að einn þessara flóttamanna væri 19 ára og annar hefði þurft að vera undir læknishendi vegna þess álags, sem fylgt hefði hans ástæðum. Fyrir lægi, að mennirnir þrír hefðu verið handteknir í gær án þess að fá tækifæri til að kveðja vini sína.
Ragna sagðist ekki tjá sig um mál einstakra hælisleitenda en sagðist hafa fullvissað sig um að farið hefði verið að lögum og reglum varðandi mál þessara manna. En hvort sem mönnum líkaði betur eða verr þá væru Íslendingar aðilar að svonefndu Dyflinarsamkomulagi og samkvæmt því fer hælismeðferð fram í ríki sem hælisleitendur eru sendir til. Þeir sem sendir væru héðan til Grikklands fengju meðferð mála sinna þar.
Ragna sagði rétt, að Flóttamannastofnun SÞ hefði tekið afstöðu gegn því að hælisleitendur séu sendir til Grikklands. Hins vegar hefði ekkert Dyflingarríki ákveðið að endursenda ekki hælisleitendur til Grikklands.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. Gunnarsson Hvar eru upphrópanirnar í bloggheimum nú? -
Sigurður Jónsson Mótmælendur kunna ekki mannasiði. -
Hreinn Ómar Smárason Mótmæli við heimili Rögnu?
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 27. mars 2009, Innlent Brottvísun hælisleitenda frestað
- Föstudagur, 12. júní 2009, Innlent Mál hælisleitenda enn til meðferðar
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Hælisleitendur sendir til Grikklands
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Amnesty vill láta stöðva framsal til Grikklands
- Mánudagur, 30. mars 2009, Innlent „Engin ástæða til að senda ekki fullorðna til Grikklands"
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































