Farið fram á gæsluvarðhald

Lögreglustöðin í Reykjanesbæ
Lögreglustöðin í Reykjanesbæ Af vef lögreglunnar

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mun í dag leggja fram kröfu fyrir Héraðsdómi Reykjaness um framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir þeim 5 Litháum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi undanfarið vegna gruns um aðild að ætluðu mansali, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 

Þá mun verða lögð fram gæsluvarðhaldskrafa yfir þremur íslenskum karlmönnum sem handteknir voru vegna rannsóknar málsins í gær. Krafist verður vikugæsluvarðhalds yfir öllum þessum aðilum.

Tvær konur sem handteknar voru í gær hafa verið yfirheyrðar og hefur önnur þegar verið látin laus en hin verður væntanlega látin laus í dag eftir frekari yfirheyrslu.

Húsleitir voru gerðar á 6 stöðum í gær og ýmis gögn haldlögð til frekari rannsóknar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert