Gagnrýna félagsmálaráðherra
Árni Páll Árnason á ársfundi ASÍ í gær. Ræða hans hefur vakið athygli. Hún hefur m.a. verið gagnrýnd af stjórnarandstöðunni á þingi í dag. mbl.is/Golli
Samtök iðnaðarins gagnrýna Árna Pál Árnason félagsmálaráðherra fyrir orð sem hann lét falla í ræðu á ársfundi ASÍ í gær. „Ekki er gott að átta sig á tilgangi félagsmálaráðherra með ræðu sinni. Erfitt er að minnsta kosti að sjá að henni hafi verið ætlað að vera lóð vogarskálar þess að halda lífi í stöðugleikasáttmálanum,“ segja samtökin.
Fram kemur í tilkynningu frá SI að félagsmálaráðherra hafi væntanlega ætlað að gefa tóninn fyrir lokasprettinn til að halda lífinu í stöðugleikasáttmálanum, með ræðu sinni í gær. Samtökin segja að vonandi sé ræða hans ekki til marks um viðhorf ríkisstjórnarinnar í þeim efnum.
„Það er langt síðan orðræða af því tagi sem félagsmálaráðherra hafði uppi hefur heyrst. Óforskammaðir kapítalistar, útgerðarauðvald, erlendir auðhringar, ginningarfífl stóriðju, grátkór og kveinstafir útgerðar og álfyrirtækja skal það nú heita,“ segja samtökin.
„Staðreyndin er sú að atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin hafa staðið við sitt við í tengslum við gerð stöðugleikasáttmálans en ríkisstjórnin ekki. Það er bláköld staðreynd. Skeytasendingar félagsmálsmálaráðherra breyta því ekki. Ekki heldur því að atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin eru samstiga í gagnrýni sinni á ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki staðið við sitt, ekki síst á sviði uppbyggingar í tengslum við framkvæmdir tengdar stóriðju. Sama gildir um afstöðuna til hugmyndanna um orku- umhverfis- og auðlindaskatta sem skellt er fram í fjárlagafrumvarpinu. Þá hafa báðir aðilar gagnrýnt framgöngu umhverfisráðherra varðandi mat á umhverfisáhrifum vegna Suðvesturlínu,“ segja samtökin ennfremur.
Bloggað um fréttina
-
Andri Geir Arinbjarnarson Pólitísk atvinnustefna -
-
Páll Vilhjálmsson Ráðherrar skapa sér stöðu fyrir fallið
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 26. október 2009, Innlent Kúvending og forsendurnar eru brostnar
- Laugardagur, 28. nóvember 2009, Innlent Kviki ekki frá fyrningarleið
- Föstudagur, 23. október 2009, Innlent LÍÚ lýsir ráðherra með lagi Þursaflokksins
- Mánudagur, 15. mars 2010, Innlent Skiptar skoðanir um afskriftir
- Föstudagur, 23. október 2009, Innlent Gagnrýna Árna fyrir ASÍ-ræðu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































