Svarthöfði og Sinfó á CNN

Enginn annar en Svarthöfði úr Stjörnustríðsmyndunum stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands nýverið. Myndskeið af tónleikunum hefur ratað inn á vefsvæði CNN sjónvarpsstöðvarinnar.

Tónleikarnir voru tileinkaðir tónlist John Williams, en hann hefur samið gríðarlegan fjölda tónverka, þó einkum fyrir kvikmyndir og er hann kannski þekktastur fyrir tónlistina í Stjörnustríðsmyndunum. Upptaka af tónleikunum hefur nú ratað inn á heimsíðu CNN sjónvarpsstöðvarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert