Ekki sameiginlegt mat
Skipulagsstofnun hefur á ný tekið ákvörðun um að umhverfisáhrif Suðvesturlína skuli ekki metin með öðrum framkvæmdum sem tengjast fyrirhuguðu álveri í Helguvík á Reykjanesi.
Suðvesturlínum er ætlað að styrkja rafmagnsflutningskerfið frá Hellisheiði að Reykjanesi. Skipulagsstofnun tók í mars ákvörðun um að ekki skyldi fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og öðrum framkvæmdum sem tengjast framkvæmdum í Helguvík. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, felldi þá ákvörðun úr gildi í september og lagði fyrir Skipulagsstofnun að taka málið fyrir að nýju.
Skipulagsstofnun segir, að þau sjónarmið sem umhverfisráðherra lagði helst til grundvallar niðurstöðu sinni hafi verið þau að stofnunin hefði ekki upplýst málið nægjanlega og hefði ekki haft samráð við framkvæmdaaðila og leyfisveitendur í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum.
Stofnunin leitaði í kjölfarið umsagna Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku, sem helst voru talin áforma virkjanir á svæðinu, sveitarfélaga og stofnana. Þær framkvæmdir sem helst gætu komið til greina í þessu sambandi eru að mati Skipulagsstofnunar virkjanir við Bitru og Hverahlíð, stækkun Reykjanesvirkjunar, jarðhitanýting við Gráuhnúka, Eldvörp og Krýsuvíkursvæðið.
Þá segir Skipulagsstofnun, að þær fyrirhuguðu framkvæmdir á Reykjanesi, sem væntanlega muni nýta sér flutningskerfi Suðvesturlína, séu, auk álvers í Helguvík gagnaver á Ásbrú í Reykjanesi og kísilmálmverksmiðja í Helguvík.
Segir Skipulagsstofnun í niðurstöðu sinni að ekki séu að hennar mati uppfyllt lagaskilyrði um að fleiri en ein matsskyld framkvæmd sé fyrirhuguð sem unnt sé að láta meta sameiginlega, sér í lagi ef höfð sé í huga sú túlkun sem komi fram í úrskurði umhverfisráðherra frá 3. apríl 2008, vegna álvers í Helguvík en þar var niðurstaðan sú, að ákvörðun um sameiginlegt mat skuli liggja fyrir áður en tekin sé ákvörðun um matsáætlun.
Kæra má ákvörðun Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 4. desember 2009.
Bloggað um fréttina
-
Stefán Friðrik Stefánsson Góð tíðindi fyrir Suðurnes - áfall fyrir Svandísi -
Snorri Bergz Mötuneyti -
Haraldur Haraldsson Ekki sameiginlegt mat/með von um að við stöndum öll saman ... -
Halldór Halldórsson Að tefja bara til að tefja! -
Sigurjón Benediktsson Þetta er hneyksli !? -
Sigurjón Sveinsson Flott mál. Hefjast þá kærur.
Innlent »
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent Góð tíðindi fyrir Reykjanesbæ
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Rangar upplýsingar um orkuþörf álvers
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent Kæra ákvörðun um Suðvesturlínu
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Ekki í sameiginlegt mat
- Föstudagur, 27. mars 2009, Innlent Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































