Fyrsta skrefið að afnámi gjaldeyrishafta tekið

Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri stækka

Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri Ljósmynd Golli

Seðlabanki Íslands tilkynnti í morgun um fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishafta með því að heimila fjárfestum að koma inn með erlendan gjaldeyri til nýfjárfestinga og fara með hann aftur úr landi þegar þegar hentar.

Með þessu fá fjárfestar heimild án takmarkana til þess að skipta aftur í erlendan gjaldeyri söluandvirði eigna sem þeir fjárfesta í eftir 1. nóvember 2009.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði að gjaldeyrishöft hefðu verið talin nauðsynleg til að stuðla að stöðugleika í efnahagslífinu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði lagt til að þessi leið væri farin. Án hafta þyrftu vextir að vera miklu hærri en þeir eru í dag. Már sagði að skilyrði fyrir afnámi hafta væri að fyrir lægi langtímaáætlun í ríkisfjármálum, að aðstæður hefðu skapast fyrir meiri stöðugleika í efnahagsmálum og gengismálum og að búið væri að endurskoða efnahagsáætlun AGS.

Már sagði að næsta skref í afnámi hafta væri að slaka á reglum um fjármagnsflutninga út úr landinu. Áður en það skref yrði stigið þyrfti að liggja fyrir að framkvæmd á fyrsta áfanga hefði gengið vel. Ennfremur að stöðugleiki væri á gjaldeyrismarkaði og að framgangur efnahagsáætlunar stjórnvalda gengi vel.

Fjármálaeftirlitið mun hafa eftirlit með fjármálafyrirtækjum sem taka að sér að breyta gjaldeyrisinnstreymi vegna nýfjárfestinga í krónur. Til að hægt verði að flytja féð aftur úr landi þarf að skrá nýfjárfestinguna hjá Seðlabanka Íslands en með því móti mun bankinn geta  fylgst með því fé sem kemur og geta gripið inn í til að efla gjaldeyrisforðann ef aðstæður leyfa.

Seðlabankinn tilkynnti einnig um endurbætur á gjaldeyrisreglum í því skyni að draga úr misræmi og koma í veg fyrir að hægt verði að fara í kringum höftin.

Í tilkynningu kemur fram að stærstu breytingar  eru eftirfarandi:

  Undanþágur ýmissa aðila, t.d. sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja, fyrirtækja með fjárfestingarsamninga o.fl. hafa verið endurskoðaðar (14. gr. reglna um gjaldeyrismál).
  Hreyfingar í krónum hafa verið takmarkaðar sérstaklega til þess að auðvelda framfylgd og koma í veg fyrir misnotkun á reglunum, sbr. 3. mgr. 2. gr. reglnanna.
  Heimildir til endurfjárfestingar hafa verið auknar og framkvæmd þeirra gerð auðveldari, t.d. hvað varðar endurfjárfestingu arðs og gengishagnaðar, sbr. 1. mgr. 5. gr.
  Settar eru auknar takmarkanir á fjárfestingu í öðrum eignum, til að draga úr möguleikum á því að sniðganga reglurnar, sbr. 6. gr. reglnanna.

Þegar möguleikum til gjaldeyrisviðskipta er tengjast fjármagns-hreyfingum fjölgar kunna að opnast nýjar leiðir til þess að fara í kringum þau höft sem eftir verða. Því er nauðsynlegt að efla gjaldeyriseftirlit í því ferli. Það hefur Seðlabankinn þegar gert með því að endurskipuleggja og efla starfsemi gjaldeyriseftirlits, sbr. frétt nr. 30/2009. Til að draga úr hættu á því að farið verði í kringum gjaldeyrishöftin ná heimildir til að flytja út fjármagn að nýju ekki til ákveðinna tegunda fjárfestinga, t.d. afleiðusamninga sem fjármagnaðir eru með lánsfé.

Seðlabankinn mun birta leiðbeiningar við reglurnar sem munu uppfærðar eins og nauðsyn þykir.

Gjaldeyrishöftin sem sett voru á 28. nóvember 2008 voru talin nauðsynleg til að koma á stöðugleika í þjóðarbúskapnum í kjölfar fjármálakreppunnar í október 2008. Nú hafa skapast aðstæður til að stíga fyrsta skrefið í afnámi haftanna í samræmi við áætlun sem Seðlabankinn lagði fram 5. ágúst sl. Þannig liggur fyrir langtímaáætlun í ríkisfjármálum ásamt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár sem felur í sér umtalsvert aðhald. Aðstæður hafa skapast fyrir stöðugra gengi krónunnar. Þá hefur fyrsta endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins nú farið fram, en hún tryggir Seðlabankanum aðgang að auknum gjaldeyrisforða.

Næsti áfangi afnáms gjaldeyrishafta, þ.e. afnám hafta á útstreymi fjármagns, ræðst af því hvernig til tekst með þennan áfanga og framgangi efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „
Tilkynnt um fyrsta skref um afnám gjaldeyrishaft í Seðlabanka Íslands

Tilkynnt um fyrsta skref um afnám gjaldeyrishaft í Seðlabanka Íslands Ljósmynd Golli

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »
Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.

Bangsi fer með í Græna herbergið

09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
KASSAGÍTARTILBOÐ
Kassagítartilboð kr. 22.900. Gítar, poki, aukastrengjasett ...
Finnsbúð 15 Þorlákshöfn
Til sölu skemmtileg eign í Þorlákshöfn. Stutt er í skóla og aðra þjónustu. Um e...
4 MANNA GÚMMÍBÁTUR
Til sölu 4 manna gúmmíbátur með 2,5 hp mótor og 3 bjargvestum. Burðargeta 400...
VOLVO S60 TURBO
Volvo S60 Turbo 20v . Nýskr. 2/2005, ekinn 142 þ. km, bensín...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...