Brutu rúðu í Alþingishúsinu

Mikið hefur mætt á Alþingishúsinu á þessu ári og því …
Mikið hefur mætt á Alþingishúsinu á þessu ári og því síðasta. Myndin tengist fréttinni aðeins óbeint. mbl.is/hag

Rúða var brotin í Alþingishúsinu rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Ungt fólk sem átti leið hjá húsinu braut rúðuna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði tal af fólkinu, sem bar því við að það hefði verið að mótmæla. Fólkið var ekki ölvað að sögn varðstjóra, engin mótmæli voru í gangi við Alþingishúsið þegar þetta gerðist, heldur var fólkið á leiðinni þar framhjá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert