Ísland verði minkaland

Minkur. Gæti orðið vaxtarbroddur á Íslandi.
Minkur. Gæti orðið vaxtarbroddur á Íslandi. mynd/Gudmundur Jóhannsson

Ísland verður fljótlega kynnt í tveimur löndum sem ákjósanlegur staður fyrir minkaeldi. Ráðunautur Bændasamtakanna bindur vonir við að kynningin skili tilætluðum árangri, að því er fram kemur á vef Búnaðarsambands Suðurlands.

Skagafjörður verður kynntur í að minnsta tveimur löndum sem ákjósanlegur staður fyrir minkarækt. Mjög hefur þrengt að minkabúum í Hollandi og Danmörku á undanförnum árum en það er einmitt í þessum löndum sem Skagafjörður verður kynntur sérstaklega, ásamt Árborgarsvæðinu.

Fjárfestingarstofan hefur veg og vanda af kynningunni og hafa starfsmenn hennar þegar rætt málið við Skagfirðinga. Kynningarátak hefst fljótlega eftir áramót og segja sérfræðingar Fjárfestingarstofunnar að starfsumhverfi loðdýraræktar sé um margt mun betra hér á Ísland en í Danmörku og Hollandi. Takist vel til, verður Ísland einnig kynnt fyrir minkabændum í Svíþjóð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert